Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

fékk inngöngu :)

01. ágúst 2009 klukkan 16:17
Jáhá, Andri fékk sem sagt inngöngu í aðalnámið og byrjar fyrir alvöru í september..  svo við erum ekkert að flytja heim á næstunni :)  Hann er búin að fá helling af vöktum í vinnunni í sumar sem er bara frábært, en það fer alveg að taka enda þar sem skólinn fer að byrja og það er það mikið að gera í skólanum að það borgar sig ekki að vera að vinna með svo hann standi sig nú strákurinn (sem ég efast sosum ekki um ).

Krakkarnir eru búnir að vera í sumarfríi í 2 vikur núna og byrja aftur í leikskóla og frístundaheimilinu á mánudaginn, svo byrjar skólinn hjá Dagbjörtu aftur 10.ágúst. Það er búið að vera mikið gaman að vera í fríi og fara SEINT að sofa og sofa aðeins frameftir. Hansi afi kom til okkar þessar 2 vikur og var aupair hjá okkur.
Krökkunum og okkur fullorðnafólki auðvitað fannst það nú ekki slæmt að hafa afa hérna.
Við drógum afa í tívolí og krakkarnir eru alltaf að verða meiri og meiri brjálæðingar í tækjunum, mér leist ekkert á að Alexander væri að fara í sum tækin en Andri sagði að hann vildi fara og þá fær hann að fara, hann lærir bara á þessu. Svipurinn í sumum tækjunum var víst mjög alvarlegur og honum leist ekkert á þetta en þegar hann var búin í tækjunum þá var hann spurður hvort hann vildi fara aftur og svarið var alltaf já. Meira að segja eftir einn rússibanann þá sagði hann að hjartað væri að slást, maður þarfað hafa ágætis hjartslátt til að finna hann án þess að koma við bringuna. En þegar ég kom við bringuna leist mér ekki á hvað það var mikill hjartsláttur, tók hann í fangið til að róa hann aðeins en hann vildi bara fara aftur  :)   algjör gaur   :)

Ég er bara búin að vera að vinna eins og vanalega búin að taka nokkra daga svona til að lengja helgi, aðallega svona þegar það koma gestir :)

Ekkert var úr því að fara í tjaldútilegu því það er svo mikil helgarvinna hjá Andra. En það kemur kannski seinna í sumar, það víst aðeins lengra sumar hér en heima (vonum það allavega). Og svo kemur sumar eftir þetta sumar.

Arnar og Ásta eru að koma til okkar núna í ágúst og það verður rosa gaman. Gerum eitthvað skemmtilegt þá helgina :)

Svo eru mamma og Eva Lind að koma 18.september. Það verður gott að hitta Evuna mína aftur, það er orðið annsi langt síðan ég sá hana síðast ,svona fyrir utan Skype.


Þangað til næst biðjum við að heilsa,
Lólý
Lólý og Andri

jæja já......huhumm

14. júní 2009 klukkan 20:15
Sæl öll, sorry hvað við erum léleg að skrifa hérna en maður kemst bara ekki af fésinu :)  hehehe.

Hér er allt fínt að frétta síðan síðast, allt gengur sinn vanagang eins og maður segir.
Andri vinnur og er í skólanum, er í prófum núna og tekur síðasta prófið á næsta þriðjudag, er búin með 3 próf og þau hafa gengið rosa vel, meira að segja fyrsta prófið var munnlegt og það í stærðfræði og gekk glimrandi. Sko minn kall  :)

Ég er að vinna eins og síðast og fékk rosa launahækkun síðustu mánaðarmót. Það á að fara að breyta aðeins hjá mér í vinnunni og á ég að geta leyst af hina og þessa af sem eru á vegum ISS í húsinu, t.d. í móttökuna, póstinn og svo þann sem sér um öll ljósritunarherbergin og pantanir í þau. Svo það verður gott að komast úr þrifunum og breyta til, seinna segja þeir svo einhverjum upp og ráða mig bara þar, er það ekki bara :)

Dagbjörtu líður vel og var að skipta um skólastofu, er sem sagt komin í húsið þar sem eldri bekkirnir eru og er rosa stollt af því. Hún er farin að æfa fótbolta og er að fíla það rosa vel, sem ég átti aldrei von á en svona er þetta. En hún er svaka spennt yfir fótboltanum og svo stollt þegar hún skorar :)
Í dag tók hún þátt í hlaupi til styrktar vörn gegn einelti og það var hlaupin kílómetri, við markið var Mary prinsessa og gaf verðlaunapening. Dagbjört var SVO spennt að hitta prinsessuna og svo við markið þá var risa bangsi við markið að hjálpa Mary og hann setti pening á Dagbjörtu. Svo þegar hún kom til mín þá spurði ég hvort hún hefði séð prinsessuna en hún sagði nei, hvar var hún. Svo ég fór með hana og sýndi henni Mary og þá sagði Dagbjört " er þetta hún, ég hélt að prinsessur væru alltaf í kjólnum"  hahaha bara yndislegust.
Skólinn klárast hjá henni 26 júní og þá tekur bara daggæslan við. Hún verður þar í allt sumar þar sem við eigum ekkert frí inni, það lokar reyndar í eina viku og þá ætlar tengdapabbi að vera svo yndislegur að koma og vera með krakkana. 

Alexander gengur vel og er glaður á leikskólanum. Við komum að sækja hann í síðustu viku og þá koma einn leikskólakennarinn og bað okkur að tala við hann. Þá hafði hann falið sig í garðinum þegar allir fóru inn og þær fóru í garðinn þegar þær tóku eftir því að hann var ekki með og kölluðu oftar en einu sinni en ekkert svar. Það leið dágóður tími þar til hann kom í leitirnar og þá létti þeim mjög því þær voru farnar að halda að hann hefði komist einhvernveginn út úr garðinum. Þegar við spurðum hann af vherju hann hefði verið að fela sig þá sagði hann að hann hefði nú bara verið að bíða eftir okkur. Og tónninn var eins og þetta væri nú ekkert stórmál.
En þetta var nú rætt og hann lofaði að gera þetta ekki aftur, grallarinn sá.  Hann á það nefnilega til að fela sig, sérstaklega ef hann sér skemmtilegan fatarekka í búðum. Svo leitar maður og kallar og er komin í hálfgert panik þegar hann kemur og segir "ég er hér".
Hann tekur svo líka eina viku með Hansa afa því leikskólinn lokar líka í eina viku og þeir passa sig á að hafa það sömu vikuna og gæslan hjá Dagbjörtu.

Gulla bestasta vinkona mí er svo að koma með Hlyn son sinn ( og VONANDI manninn) í byrjun júli að það er mikil tilhlökkun á bænum. Þau verða hjá okkur í 5 daga :)
Svo eins og ég sagði áðan kemur Hansi tengdapabbi um miðjan júlí og ætlar að vera með krakkana fyrir okkur og hann verður í tvær vikur hjá okkur :)

Jæja nóg í bili, er farin að sofa.

Kv. Lólý
Lólý og Andri

vor og blíða

02. apríl 2009 klukkan 21:15
Já sæl..

það er nú orðið askoti langt síðan við skrifuðum hérna inn... eeeenn..

Héðan er allt gott að frétta, vorið er komið og sólin búin að skína í 4 daga og á tímabili er meiraðsegja stuttermabola veður.  Um helgina er svo spáðu heiðskýru og um 16 stiga hita ( mont mont ).

En helstu fréttir úr mars mánuði.

Dagbjört fékk hlaupabóluna nokkrum dögum eftir að hún kom frá íslandi og ég ( Andri ) var heima með hana í viku, þar sem við dúlluðum okkur við spil og sjónvarpsgláp. Ég gerði nú þau mistök að kenna henni Monopoly og gerði hún sér lítið fyrir og rústaði mér í því. Þegar við gerðum upp í lokin kom i ljós að eftir að ég hafði selt allt mitt upp í skuld við hana þá skuldaði ég henni ennþá 2000 Monopoly krónur. Hún sagði að það væri í lagi, ég gæti bara borgað henni með alvöru peningum og hún gaf sig ekki fyrr en hafði borgað henni. Sem betur fer náði ég nú að semja skuldina niður í 20 kr. danskar. Maður sér það því á henni að annaðhvort verður hún svakalegur fjármálasérfræðingur... eða handrukkari.
En að öðru leiti stóð hún sig vel stelpan og passaði mikið uppá að klóra ekki í bólurnar.
Þegar ég hafði svo náð að vera í skólanum í viku þá fékk Alexander hlaupabóluna.. og það var nú ekki eins mikil paradís og hjá Dagbjörtu. Hann fékk mikið fleiri bólur og klæjaði svo um allan skrokkinn. Við vorum með allskyns krem og duft til að bera á hann samkv. læknisráði og svo kláðastillandi lyf svo hann gæti sofið. Já þetta var sko erfið vika fyrir hann greyið.
En núna eru þau bæði hress og kát og gengur vel í skólunum sínum.
Reyndar fékk ég símtal frá leikskólanum á miðvikudaginn, þar sem mér var tjáð að í skógarferð þá hefði Alexander stungið af og týnst í 5 mínútur.. í skóginum .. og nota bene .. þetta er ekki íslenskur "skógur" þar sem maður stendur bara upp ef maður týnist. Ég var s.s beðinn um að tala við hann og brýna það fyrir honum að það megi ekki fara frá hópnum. Þegar ég talaði svo við Alexander um þetta mál og spurði hvort hann hefði týnst þá þóttist hann ekkert vita um málið. En þegar ég sagði honum að fólkið á leikskólanum hefði sagt mér að hann hefði týnst vildi hann aðeins kannast við málið, en sagði samt að það hefðu nú verið allir hinir og fólkið sem var týnt. S.s hann vissi allan tímann hvar hann var.. hinir voru týndir. Þannig að maður sér að hann verður annaðhvort Stjórnmálamaður eða Jón Ásgeir.
Svo vorum við Lólý áðan á foreldrafundi með kennaranum hennar Dagbjartar og þar kom fram að henni gengur bara mjög vel í skólanum. Á reyndar soldið erfitt með einbeitingu og að koma sér í að gera hlutina og finnst gaman að tala. Veit ekki hvaðan hún hefur það.. líklegast frá móður sinni ( hóst... ).

Krakkarnir eru svo mjög spenntir því að í næstu viku koma mamma og pabbi og verða hjá okkur í 9 daga.  Það verður mjög gaman að fá "gamla settið" og þvæla þeim um köben og smá til svíþjóðar ef planið stenst.

Annars er af okkur foreldrunum að frétta að Lólý vinnur og vinnur og ég skóla og skóla. Er á fullu að reyna að vinna upp þessar 2 vikur sem ég hef misst úr vegna veikindanna, en ég hef svo sem engar áhyggjur af því að ná þessu ekki upp.. enda er ég bráðgáfað kvikyndi..

....svona þegar ég næ að einbeita mér og kem mér í það og er ekki að tala ;)

Kv.
Andri

Lólý og Andri

halló....

28. febrúar 2009 klukkan 19:46
longtæmnosí...

Hér er allt sæmilegt að frétta. Ég að vinna, Andri í skólanum svona þegar ekki eru veikindi og Alexander og Dagbjört í sínum skólum. Vinnan hjá mér byrjaði nú ekki vel, ég var búin að vera veik 4 daga fyrir fyrsta vinnudaginn, mætti svo hálf veik í vinnuna og var í þrjá daga (mán, þri,mið,), á fimmtudeginum var ég orðin svo slöpp að Andri eiginlega bannaði mér að fara í vinnuna. Þá ákvað ég að fara til læknis þar sem þetta var búin að vera vika og ég nýbyrjuð í vinnunni. Útúr læknisheimsókninni kom að ég var komin með lungnabólgu (enda að hósta úr mér veit ekki hverju), á að vera heima í einhvern tíma meðan ég er að jafna mig og það tók frá fimmtudegi fram á mánudag. Loksins gat ég farið að mæta í vinnuna þó máttlaus væri ennþá en maður lét sig hafa það. En nú er ég sko komin með fullan kraft aftur (fyrir utan letina:) hehe  ). Alexander var veikur með mér fyrstu dagana en hann var ekki lengi að ná sér uppúr þessu. Og hefur nota bene ekkert notað púst í vetur 7 9 13.

Dagbjört fór í heimsókn til Íslands í vetrarfríinu og skemmti sér konunglega og var svakalega ánægð að hitta alla. Var voða spennandi að fara ein með vinkonu sinni og bróður hennar sem er 12 ára í flugvélina, já þetta var sko ekki mikið mál hjá henni. Henni fannst hún alveg orðin 13 ára að fara svona án okkar :) .

Nú er Dagbjört komin með hlaupabóluna og er með soldið mikið að bólum (7 bara á enninu) að mér finnst en hún er rosa dugleg að klóra sér ekki í bólunum, en þeir eru aðalega á bakinu, maganum og höfðinu. En hún er að sleppa við hita og svoleiðis, borðar bara lítið.

Svo er gaman að segja frá því að við erum að fá tengdó í heimsókn um páskana, það verður rosa gaman að fá þau þar sem það er langt síðan við hittumst síðast.

Annars er bara allt að ganga sinn vanagang hérna, alt i orden bara.

Þangað til næst,
Kveðja, Lólý
Lólý og Andri

allt gott....

23. janúar 2009 klukkan 21:20
halló....

Þá eru nokkrir dagar síðan mamma fór og varð frekar tómlegt þegar hún var farin, var voða gott að hafa hana og krakkarnir ánægðir með að hafa hana, enda fengu þau Cocoa puffs, lifrapylsu og íslenskt nammi.
Andri náði prófunum og er byrjaður á næstu önn og allt gengur vel.  
Alexander er búin að vera eitthvað leiður að fara í leikskólann alla vikuna, var reyndar skástur í morgun. En þau tala um á leikskólanum að hann sé soldið farin að tala dönskuna svo það á vonandi eftir að verða auðveldara fyrir hann. Alltaf erfitt að geta ekki tjáð sig almennilega t.d. ef eitthvað er að.
Dagbjört er bara ánægð í skólanum og er svo spennt núna því hún fer til Íslands í febrúar þegar vetrarfríið er hérna, verður í viku og nú talar hún ekki um annað en þessa ferð og hvað hún vill gera á meðan hún er á Íslandi.
Ég er bara heima og er ennþá að leita að vinnu, var í einu viðtali á mánudaginn og er að bíða eftir svari þar ef það kemur þá svar. Þetta er að verða annsi langur og erfiður tími að vera heima og gera ekkert, ekki alveg fyrir mig. Ég fer svo í próf í dönskuskólanum annan og fjórða febrúar og eftir þau veit ég hvort ég kemst upp á næsta stig. En ég hef sosum litlar áhyggjur af þessum prófum.

En annars biðjum við að heilsa öllum þangað til næst...

Kv,
Lólý 
Lólý og Andri

er að koma gestur :)

08. janúar 2009 klukkan 20:07
Halló...

Já það er sko að koma gestur 16.jan. Það er Guðný amma og allir rosalega spenntir. Það eina sem Dagbjört biður ömmu að koma með er lifrarpylsa með grjónagrautnum :). Alexander biður ekki um neitt nema í dag þá sagði hann að amma mætti alveg koma með Karíus og Baktus sem hægt væri að horfa á, við eigum nefnilega bara geisladiskinn. Það er verið að spila þetta á leikskólanum og hann skildi ekki söguna en þekkti strax öll lögin. Fóstrunum fannst mjög athyglisvert þegar ég kom að sækja hann einn daginn og þá kom hann hlaupandi til mín og sagði að þau væru að hlusta á söguna, vissu ekki að hann þekkti þetta.

Annars er allt gott að frétta, krakkarnir mjög ánægðir að fá rútínuna sína aftur og komast í skólana sína. Andri er í prófunum núna, er búin með eitt sem honum gekk rosa vel í og fer svo í annað á morgun og ég efast ekki um að hann standist það með glæsibrag. Ég er ENN heima og er að leita að vinnu.

Já og ég var að setja inn eitthvað að myndum á picasa síðuna okkar. Linkurinn á hana er efst til hægri.

Kv,
Lólý 
Lólý og Andri

Jól og áramót búin...

01. janúar 2009 klukkan 16:09
Sæl öll sömul og gleðilegt nýtt ár. 

Við erum búin að hafa það svakalega fínt hér um hátíðarnar. Á aðfangadag vorum við 4 heima og það var svaka kósí hjá okkur, samt skrítið að hafa engan Magga afa og svo kíkti enginn í kaffi eftir pakkaupptöku eins og Guðný amma og Ingi afi hafa gert ef við erum heima á aðfangadag. Á jóladag og annan í jólum vorum við sko bara heima á náttfötunum og lágum í LETI. Eftir jól skelltum við okkur í jólatívolí og það var frábært, fórum í fullt af tækjum og þá sérstaklega Dagbjört sem var bara gjörsamlega óð í öllu og sló okkur þremur alveg út. Svo er alltaf svona jólaland sem var gaman að skoða og fullt af ljósum út um allt.
Ég og Dagbjört fórum í bíó að sjá High school musical 3 (auðvitað) og það var voða gaman að fara svona bara tvær og njóta þess að vera saman.
Um áramótin fórum við með Maríu systir til vinkonu hennar og þar vorum við alveg 10 fullorðin og 8 börn svo það var fjör á bæ. Þetta voru fín áramót og var skálað bæði fyrir dönskum og íslenskum áramótum. Alexander sofanði 5 mínútur fyrir miðnætti og var alveg búin á því en Dagbjört vakti til hálf þrjú. Þetta voru fyrstu áramótin hennar Dagbjartar sem hún fór út um miðnætti því hún hefur alltaf verið svo svakalega hrædd við þessar sprengjur og lætin í kringum þetta. Ég held það hafi verið vegna þess að það var ekki mikið sem var sprengt nálægt okkur.

Krakkarnir voru ánægðir með allar jólagjafirnar, já og við auðvitað líka. Það eina sem Dagbjört vonaðist til að fá og fékk ekki frá okkur var Nintendo DS. En hún er ákveðin í því núna að safna sér pening til að fá tölvuna. Þannig að nú er hún svo dugleg með heimilisverkin og svo hjálpsöm af því hún veit hún fær smá pening fyrir að hjálpa okkur. 

Við þökkum kærlega fyrir okkur og öll jólakortin.

Kv,
Lólý
Lólý og Andri

... dóttir mín talar Dönsku

19. desember 2008 klukkan 14:10
Komiði nú sæl og blessuð, ( lesist með eins og Jón Ársæll segir þetta )

Ég á nú ekki til eitt orð, ég vissi það að dóttir mín var farin að segja eitthvað á dönsku en ekki datt mér í hug að það væri svona rosalega mikið.  Núna eru 2 danskar vinkonur hennar hjá okkur ( í fyrsta skipti sem danskar stelpur koma hingað ) og Dagbjört talar nánast reiprennandi dönsku.  Það eru örfá orð sem hún hikstar á en reddar sér.  Við héldum líka að hún væri alltaf svo ýkt í framburðinum þegar hún talar, en við getum ekki heyrt mikin mun á henni og stelpunum.  Versta reyndar við þetta er að hún er farin að leiðrétta mig og mömmu sína í framburðinum, sem er nú askoti kjánalegt.. en hún kann þetta víst :).

Annars er Lólý líka orðin kræfari í dönskunni og farin að tala meira, ég er stolltur af henni fyrir það.

Með mig gildir það sama og á íslensku, get sjaldnast þagað... enda var einhverntímann haft á orði við mig í skólanum að ég væri "one man show". 

Annars erum við krakkarnir komin í jólafrí og því er ekkert nema leti og át frammundan... sem er reyndar ekkert frábrugðið venjulegum skóladegi hjá mér.. en hvað um það.  Prófin hjá mér verða svo í janúar þannig að eitthvað verður lesið í fríinu.

Svo fyrir þá sem hafa ekki frétt þá hef ég fengið vinnu með skóla næsta ár.  Fékk að sjálfsögðu vinnu við það að gera við Nokia farsíma ( og hvaða eru mörg við í því ).  Þannig að ég er lukkulegur með það.

En annars bið ég bara að heilsa.

Kv.
Andri

ps. stafsétningarvilurnnar eru mínar eigins
Lólý og Andri

loksins....

11. desember 2008 klukkan 17:19

Jæja loksins skrifa ég....  ég hef nefnilega verið að reyna að láta Andra segja eitthvað sniðugt hérna en það gengur eitthvað illa  :)

Krökkunum gengur rosa vel og tala meira með hverjum deginum, við erum búin að fara á jólaföndur og luciuhátið hjá Dagbjörtu og hjá Alexander var bæði luciuhátið og svo fórum við í húsið sem hann fer í þegar hann fer í skóginn í föndur og Alexander gerði jólaskreytingu með kerti.
Það var rosa gaman að sjá húsið og garðinn sem þau fara í þegar þau eru í skógargrúppunni, alveg geggjaður garður með engum leikföngum heldur bara tré og kaðlar í trjánum og svoleiðis.

Þá eru jólin alveg að koma og ég ætla bara að segja það hér og nú að ég sendi ekki nein jólakort í ár svo hér með óskum við öllum sem við þekkjum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
 
Ég er búin að nánast öllu fyrir jólin, ætla að senda smá pakka til Íslands eftir helgi og þá á ég eftir að skreyta jólatréð og pakka inn fyrir krakkana, gott að vera í rólegheitunum. 

Annars veit ég ekki alveg hvað ég á að segja meira, það gengur allt sinn vanagang og við erum bara ánægð hérna og fórum af skerinu á hárréttum tíma.

Biðjum að heilsa öllum,
Kv, Lólý 

Lólý og Andri

barnabörnin farin :)

19. nóvember 2008 klukkan 21:37
Halló allir,

Þá eru barnabörnin okkar Andra farin, s.s. hamstrarnir. Við leyfðum Dagbjörtu þó að halda einum unga þannig að nú erum við með 2 stykki sem eru Rósa og Gabríella (já, það eru bæði kellingar eins og nöfnin gefa til kynna, ekki fleiri unga takk). Þetta léttir örlítið á vinnunni hjá okkur Andra við að þrífa búrin því það munar að hafa 8 stykki eða 2. En Dagbjört var nú alveg sátt við að skila þeim í búðina, reyndi reyndar aðeins fyrst að fá að hafa 3. Andri hringdi í búðina og sagði að þau hefðu selt okkur óléttan hamstur og hvort þau gætu tekið 6 unga fyrir okkur. Það var ekkert mál, konan sagði að það væri þeim að kenna að hafa selt okkur óléttan hamstur. Og lét okkur svo hafa 2 matarpoka (af hamstramat) í staðinn fyrir hamstrana, það fannst mér góður díll.

Dagbjört er farin að tala alveg helling og gengur hér á eftir manni og segir ekki "mamma" heldur "mor". Það gengur ágætlega hjá henni í skólanum, reyndar einhver smá kítingur en það er víst á milli fleiri stelpna ekki bara henni.
Hún fer alltaf í íslensku kennslu á mánudögum í öðrum skóla og það finnst henni mjög gaman, fyrst þegar hún var að fara þá spurði hún hvort kennarinn væri íslenskur og ég svaraði já, þá sagði hún bara "hjúkk, þá get ég spurt á íslensku", hehehe.En það er nú soldið liðið síðan og hún er farin að spurja dönsku kennarana líka.


Alexander er alsæll í leikskólanum og um helgina taldi hann upp í 5 alveg sjálfur, maður verður SVO stolltur af fyrstu orðunum sem þau segja á öðru tungumáli. Svo segja þær á leikskólanum að hann skilji nokkuð vel hvað þær eru að meina og þær eru líka duglegar að sýna honum hlutina á meðan þær segja orðin. Svo um daginn þegar hann var að ræða við pabba sinn þá spurði hann "pabbi, veistu hvernig maður segir búin á dönsku" ( hann var sko á klósettinu :) ), maður segir færdig. Hann var sko alveg með það á hreinu.

Af okkur Andra er allt gott að frétta, hann er í skólanum og ég heima og í dönskunáminu 2 í viku á kvöldin. 

Svo set ég inn nýjar myndir bráðum og þá er það linkurinn sem er hægramegin á síðuna inn á picasa.

Bið að heilsa í bili,

Kv,
Lólý 
Lólý og Andri

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...