Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

.. og spennan magnast...

31. júlí 2008 klukkan 19:55
Fórum í dag með henni Sigrúnu Þormar að skrá okkur inn í landið og fá danska kennitölu.  Sigrún  sér um að flytja íslendinga til Danmerkur ( bland andet, sjá www.sigrunthormar.dk ).  Þessi kona er alger snillingur og er búið að vera frábært að hafa hana við hendina.  Hún s.s sá um að finna íbúð og sækja um húsaleigubætur...barnabætur.. hjólabætur.. og .. já bara allt sem þurfti að sjá um.. og meira til.  En s.s í dag þá skráðum við okkur inn, sóttum um leikskóla fyrir Alexander .. og fórum og fengum lyklana af nýju íbúðinni.  Fórum auðvitað og skoðuðum og maður lifandi hvað hún er flott.  útsýnið er heldur ekki ónýtt, enda íbúðin á 5 hæð.  Sem reyndar er ekki alveg algott, því að lyftan er ekki stór og það eru einhverjir hlutir sem við þurfum að ganga með upp ( einhverjir sjálfboðaliðar ? ).  En kallinn er í góðu formi ( heil 109 kg ) og svo hef ég mössuðustu konu norðan alpafjalla til að hjálpa mér.

Ég set inn myndir af íbúðinni á morgun.

Kv.
Andri
Lólý og Andri
Greifinn af Vanløse skrifar ...
 
Það er bara allt að gerast! Myndi ganga dauðagönguna með ykkur ef ég væri á staðnum, honestly. Gangi ykkur vel, og það verður frábært að hafa ykkur í nágrenninu í vetur. Sjáumst fyrr en seinna. Kveðja G.
31. júlí 2008 klukkan 20:39
Árni Gunnar skrifar ...
Rúmið kemst aldrei inn ... og löggan kemur eftir einn og hálfann tíma.

:)
31. júlí 2008 klukkan 23:06
Klara skrifar ...
 
Hæ Hæ
Gaman að heyra að allt gengur vel, verst að ég gat ekki hitt á ykkur áður enn þið fóruð. Heyrumst Kveja Klara og fjölskylda
05. ágúst 2008 klukkan 10:22
Harpa Dögg skrifar ...
Æði að það sé búið að ganga svona vel :) en hvar eru myndirnar ég bíð spennt hér í sólinni :p
07. ágúst 2008 klukkan 16:01

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...