Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

Þar sem rafmagnstenglarnir brosa...

09. ágúst 2008 klukkan 17:50

Jæja, þá er loks tími til að setjast niður og skrifa færslu.  Við gengum frá síðasta kassanum í gær og því erum við formlega búin að klára flutningana. 
Að koma dótinu úr gámnum og inn í íbúðina gekk brilljant enda voru María mágkona og Niels maðurinn hennar að hjálpa okkur.  Við Niels komum öllu í lyftuna.. fyrir utan 1 skáp.  Sama hvað við reyndum hann passaði ekki inn, okkur fannst það skrýtið í ljósi þess að við héldum að það hefði farið annar svona skápur upp í lyftunni rétt á undan, en svo að lokum ákváðum við að þessi hlyti að vera stærri og því bárum við hann upp 5 hæðir. Þegar upp var komið þá voru skáparnir bornir saman og viti menn.. nákvæmega jafn stórir og báðir úr Billy fjölskyldunni hjá IKEA.  Þannig að ástæða þess að hann komst ekki í lyftuna hlýtur því að liggja í litnum og því mæli ég ekki með því að fólk kaupi beyki litaða skápa hjá IKEA ef það er eitthvað tæpt með plássið :)

Krakkarnir eru hrikalega ánægðir með herbegin sín og bara kát með þessa flutninga.  Stubburinn Alexander fattaði það þegar hann var að skoða herbergið sitt að rafmagstenglarnir brostu og kallaði á okkur að koma að skoða og viti menn, hann sá s.s það sem ekkert okkar hafði séð og það er að rafmagstenglarnir brosa svo sannarlega( sjá mynd ).



Við fórum og töluðum við aðstoðarskólastjórann í skólanum sem Dagbjört fer í og leist okkur frábærlega á.  Það eru víst 2 aðrar íslenskar stelpur sem byrja í skólanum í haust og það eru 3 fyrir.  Dagbjörtu finnst það reyndar svoldið spælandi að hún fer aftur í annann bekk því að danirnir eru með 0 bekk sem fyrsta bekk og því er 3 bekkur þeirra dana 2 bekkur.. uh.. já.  En hún tekur alveg þeim útskýringum að hún sé ekki að fara aftur í 2 bekk heldur bara að danir séu skrítnir... sem þeir eru.  En allavega þá byrjar skólinn hjá Dagbjörtu á mánudaginn og er mikill spenningur með blandi af kvíða ( hjá foreldrunum ).

Skólinn hjá mér byrjar svo líka á mánudag og er líka spenningur fyrir því.. en enginn kvíði því ég veit að ég massa þetta í tætlur ( á maður ekki annars að hugsa svona )?

Jæja .. að öðru leiti eru allir kátir og hressir og við horfum jákvæðum augum á lífið, tilveru og framtíð okkar í þessu landi..  og er annað hægt þar sem meiraðsegja rafmagnstenglarnir brosa við okkur.

Kveðja
Andri, Lólý og börn.


Lólý og Andri
Árni Gunnar skrifar ...
:)
09. ágúst 2008 klukkan 21:38
Ingveldur skrifar ...
 
Gaman að þið skuluð vera farin að blogga....Til lukku með flutningana :o)
10. ágúst 2008 klukkan 10:05
Birna Dís skrifar ...
Til hamingju með flutningana og gangi þér vel í skólanum - þú rúllar þessu upp ;)
10. ágúst 2008 klukkan 14:13
Kristín Svavarsd. skrifar ...
Hæ,hæ
Frábært að heyra að það gangi svona vel hjá ykkur... Er ekkert smá ánægð með ykkur að hafa látið verða af þessu...
Heima hjá mér var grátið í morgun af því að Svavar vildi svo mikið fara að heimsækja Alexander sinn :) Verðið að knúsa hann frá Svavari ;)

Hafið það gott og gangi ykkur vel.
Kveðja, Kristín
11. ágúst 2008 klukkan 10:26
Halla G skrifar ...
 
Hæ hæ, snilld með tenglana :) stundum þarf maður kannski bara að hugsa eins og barn til að sjá :) gangi ykkur allt í haginn, Andri þú átt eftir að rúlla náminu upp með einari :)
Góðar heilsur
11. ágúst 2008 klukkan 13:05
Mummi skrifar ...
 
Til hamingju Andri þú slappst við gróðursetninguna.Frábært að heyra að allt gengur vel hjá ykkur.Dagbjört,kisurnar eru fundnar og sú litla stækkar og stækkar.Tetra biður að heilsa og við líka...
12. ágúst 2008 klukkan 23:52

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...