Nýr skóli og nýjir vinir
12. ágúst 2008 klukkan 20:39
Jæja þá er Dagbjört búin að vera í 2 daga í skólanum. Fyrri daginn var hún soldið lítil og vildi bara fara heim en þegar það gerðist þá kom bekkjarsystir hennar og tók utan um hana og sagði að það væri allt í lagi og þá sá hún að þetta var nú ekki alslæmt. Dagurinn endaði samt vel og hún var nú brosandi þegar ég sótti hana.
Annar dagurinn var auðveldari og hún plumaði sig bara vel að sögn kennarans. Kennarinn talaði um að hún hefði sagt nokkur orð á dönsku í dag og hún eignaðist vinkonur í bekknum. Hún var mjög kát allan tímann. Þannig að þetta kemur vonandi bara fljótlega hjá henni.
Alexander er í miklu fjöri og þarf alveg að fara að komast á leikskóla :) En þeir lofa því að hann komist inn innan 3 mánaða þar sem við sóttum inn fyrir hann, en það er leikskóli sem er svona 10mín. hjólaleið.
Leikskólinn sem er hérna fyrir utan hjá okkur er með árs bið svo við erum a lista þar líka og færum hann þegar að af því kemur. Hann er líka bara krútt þegar hann segir "jeg hedder Alexander"
Andri er búin með annan daginn sinn og segir bara eftir daginn í dag að sem betur fer er stærðfræði á alþjóðlegu tungumáli ;)
Um mig er sosum ekki mikið að segja nema að mér líður bara vel og reyni að halda heimilinu gangandi :)
Nú er pabbi í heimsókn, hann kom í gær þannig að það var mikil spenna á heimilinu að fá hann.
Við erum náttúrulega búin að fara að versla með hann og svo gerum við eitthvað fleira skemmtilegt eins og að fara í Tivoli um helgina.
Jæja ég læt þetta duga í bili,
Kveðja, Lólý
Lólý og Andri

Frábært hvað allt gengur vel hjá ykkur þið massið þetta en ekki hvað.
Það er nú samt soldið tómt eftir að þið fluttuð verð nú bara að viðurkenna það.
Engin Lóly til að hringja í á hverjum degi og enginn Andri til að klæmast við verð líklega bara að snúa mér að manninum mínum :)
Saknaðar kveðja GUlla
Frábært að fá svona fréttir af ykkur :) Andri rúllar þessum skóla upp og verður örugglega orðinn óskiljanlega danskur áður en varir :)
Börn eru börn og óhuggulega fljót að læra :) hef engar áhyggjur af þeim :)
og þú Lólý mín verður að vera nógu dugleg að fara út og tala... bara við hvern sem er :) snakka dönsku í öllum búðum og stöðum :)
ég reyndi það þegar ég kom til Köben og það gekk bara furðu vel... fljótt að koma :)
hafið það æðislegt !!!
Ég vil skila sérstakri kveðju til elsku Dagbjartar minnar ;* passið bara upp á það að þau kunni ennþá íslensku næst þegar maður hitttir þau ;P
Annars bið ég bara að heilsa ;D
Kiss kiss ;**
- Eva ;* <3<3