smá tungumálaörðugleikar
26. ágúst 2008 klukkan 20:05
Dagbjörtu gengur ágætlega í skólanum svona miðað við það að vera hent í djúpu laugina og kunna ekki stakt orð í dönsku. Það kom reyndar í gær upp smá rifrildi á milli hennar og einnar stelpu í bekknum en mér skildist að það væri nú frekar svona tjáningarleysi hjá þeim báðum. Það er erfitt að segja einhverjum eitthvað sem skilur mann ekki neitt.
En í dag gekk allt rosa vel, ég skrifaði nokkur ca. 15 dönsk orð á blað og svo íslensku þýðinguna líka, orð eins og borða, matur, leika o.s.fr. Þannig að kennarinn gerði í dag svona kósí stund með stelpunum í bekknum þar sem dagbjört lærði dönsku orðin og bekkarsysturnar íslensku orðin. Svo fékk ég heimaverkefni að gera aðeins fleiri orð til að auðvelda ölum lífið í skólanum.
Þegar við spurðum svo Dagbjörtu hvort að kennarinn hafi getað lesið öll íslensku orðin þá varð hún hálf hneiksluð á svipinn og sagði að hún hefði þurft að lesa öll íslensku orðin til að kenna þeim og þurfti víst að leggja áherslu á orðin :)
Alexander minn er að verða heldur leiður á mömmu sinni svona alla daga en við eigum víst von á bréfi fljótlega með tilboðum um leikskóla. Það verður vonandi bara eitthvað sem er soldið nálægt svo hægt sé að taka þeim tilboðum.
Andri er rosa duglegur í skólanum og allt gengur ágætlega þar. Meira að segja búin að fara á eitt skóla"fyllerí".
Kveðja,
Lólý
Lólý og Andri

Heitir þetta ekki "vísindaferð" eins og í háskólunum hér eða nota skólarnir úti bara réttnefnið á þetta "skólafyllerí"?
Kv af klakanum, Ingveldur
og N.B ég er marg oft búin að reyna að commenta en það gengur aldrei upp hjá mér.. fæ endalaust einhverja villu.. en tekst kannski núna :)
Hafið það best og knús og kossar frá okkur stelpunum :)
Rakel, Alexía og Aþena
p.s Alexía er oft að spyrja hvort að Dagbjört sé enn í danmörku.. langar svo að hitta hana :) híhí :)
Við hittum hana Hebu í dag og hún sagði okkur frá blogginu ykkar þannig að það var kíkt við fyrsta tækifæri á það og nú kíkir maður reglulega á það hjá ykkur.
Gott að heyra að allt gangi vel og Andri orðinn svona "sleipur" í dönskunni.
Hlökkum til að lesa meira.
Kv, Nonni, Eva, Thelma Björt og Guðmar Gauti