Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

mánuður... og rúmlega það.

01. september 2008 klukkan 21:13
Jæja... þá er fyrsti mánuðurinn liðinn og hefur bara gengið sgu vel.  ( svo vel allavega að maður er farinn að blóta á dönsku smbr. sgu ( fjandans )).  Maður er aðeins kominn inn í stemmninguna í bekknum eftir þetta "fyllerí" sem konan mín rangnefndi atburðinn í blogginu hér á undan.  Hér heitir þetta neflilega "info fest" og er hávísindaleg athöfn sem byggist aðallega á því að þamba bjór.  Eins og þeir sem þekkja eitthvað til mín vita þá var ég nú ekki lengi að stimpla mig inn sem bekkjar-trúðurinn þegar ég var kominn með bjór í hönd.  Það sem meira er að dönskukunnáttan fór algerlega á flug við 3ja bjór og hefur það greinilega gengið það vel á seinni stigum kvöldsins að nú er ekki talað við mig öðruvísi en á dönsku af bekkjafélögum.  Það gengur reyndar furðu vel, málið er bara að taka pólverjann á þetta.. s.s brosa, kinka kolli og segja "ja" á réttum stöðum þó svo maður skilji lítið.

Á þessum mánuði hef ég nú samt lært alveg fullt af hlutum sem eiga eftir að nýtast mér það sem eftir er ævinnar, t.d að þó svo að drykkurinn heiti eitthvað Cola og er svartur þá er það ekki kók og að bjór og bjór er ekki það sama.  Einnig hef ég lært það að danmörk er ekki flöt og er það mýta sem þarf að útrýma á íslandi.. jú jú það er reyndar enginn punktur hérna sem er hærri en skólavörðuholtið en það er allt í hólum og hæðum og því eru alveg átök að hjóla.  En engar áhyggjur, það sem ég brenni á hjólreiðum bæti ég upp með bjór ( og vel það ).

En að öðru leiti líður okkur vel, bíðum reyndar enn og vonum að Alexander greyið fari að komast inn á leikskóla því að hann á fullt af afgangsorku sem hann þarf að losna við.  Þegar við vorum á íslandi þá fór hann að sofa á milli 19 og 20 á kvöldin, svo þurftum við að vekja hann í leikskólann á morgnanna og ef hann fékk að sofa út þá svaf hann til 10.  Núna fer hann að sofa á milli 20 og 21, vaknar svo á milli 06 og 07 og tilkynnir okkur að það sé kominn dagur... og það er mikil gleði hjá okkur foreldrunum þegar hann gerir það um helgar.  


Kv.
Andri




 

Lólý og Andri
Begga og company skrifar ...
 
Rosalega fínt að heyra að allt gangi vel
en það sem að ég hef lesið út úr þessari færslu er að vera bara alltaf á 3 bjór svo man geti talað dönsku ;)

KV: frá Bananalýðveldinu
12. október 2008 klukkan 22:46

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...