Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

og bjallan hringdi....

02. september 2008 klukkan 18:48
Í dag kom í fyrsta skiptið stelpa að spyrja eftir Dagbjörtu. Hún er sem sagt ári eldri, íslensk og flutti í götuna um helgina. Dagbjört var mjög glöð að einhver skildi koma og vildi leika við hana og ég bara held að þær eigi soldi vel saman. 
Það eru nefnilega rosa viðbrigði fyrir hana að geta ekki farið til allra vinkvennanna eins og hún gerði heima.

Alexander minn var ekki alveg jafn heppinn í dag því hann var í tölvunni og hann var svo mikið að hoppa í leiknum að hann datt úr sófanum þegar hann var komin með fjarstýringuna svo langt upp í loft að hann náði ekki jafnvægi.
Það sem verra er að hann datt á brúnina á stofuborðinu og það var ekkert smá högg. Fékk mar undir hökuna,beit í efri vörina og sitthvoru megin í tunguna. En við vorum mjög heppin að ekki fór verr, tungan hefði getað farið í sundur eða komið gat undir hökuna (munaði ekki miklu að það færi í gegn). En allt blessaðist eftir mikinn grátur og kaldan þvottapoka. Það eru myndir af honum í myndaalbúminu.


Lólý og Andri
Kristín Svavarsd. skrifar ...
Áts! Æji greyið hann hefur verið heppinn að ekki fór verr litli kallinn... Gott að allt fór vel.
Frábært að allt sé farið að ganga hjá Dagbjörtu, skiptir öllu máli að það gangi vel hjá þessum gríslingum manns.

Kveðja, Kristín og co
03. september 2008 klukkan 10:49
Hanna skrifar ...
 
Flott að heyra með Dagbjörtu. Það er ekkert yndislegra en að börnin manns eigi vini. Frábært hvað allt gengur vel hjá ykkur. Aumingja Alexander, greyið litla það er eins gott að það fór ekki verr hjá honum.
Er Andri ekki örugglega búinn að finna nám handa Gumma þarna úti? :-)
Hafðu það gott og við heyrumst bráðlega.
03. september 2008 klukkan 11:00
EvaLind skrifar ...
 
Áááii! Ég fékk bara illt þegar ég sá myndirnar af Alexander :/ Bara heppinn að ekki fór verr.
Og æðislegt að Dagbjört sé að kynnast einhverjum þarna, það munar helling :) Annars bið ég bara æðislega að heilsa öllum og kyssiði krakkana frá bestu frænku :**

- Eva ;*
03. september 2008 klukkan 12:07
Nonni, Eva og co skrifar ...
En leiðinlegt að heyra með Alexander, ekkert smá högg sem hann hefur fengið. Vonandi verður hann fljótur að jafna sig.
Frábært að Dagbjört sé búin að eignast vinkonu sem talar sama tungumálið þótt að börn séu fljót að læra þá er alltaf gott að hafa einhvern sem skilur mann.
Biðjum voðalega vel að heilsa.
Kv, Eva, Nonni og börn
03. september 2008 klukkan 23:52
Arnar ,kolla og fjölsk skrifar ...
 
Áááts! Hlýtur að hafa verið rosa vont. En hann jafnar sig fljótt því hann er svo hraustur strákur. Frábært að Dagbjört er búin að finna vinkonu sem talar sama tungumál og hún. Biðjum bara voðalega vel að heisa héðan úr Grindavík.
04. september 2008 klukkan 20:31

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...