Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

afmæli í dag

06. september 2008 klukkan 17:01
Halló allir.

Á morgun á Alexander afmæli svo a ðvið fórum í Toys´r´us í dag og hann fékk að sýna okkur hvað hann vildi í gjafir frá okkur, ömmu, afa og afa. Hann labbaði um allt og vildi náttúrulega helminginn úr búðinni. Eftir ferðina í gegnum búðina fór ég með Alexander út úr búðinni og Andri fór inn og keypti það sem búið var að ákveða að kaupa. Svo var pakkað inn á staðnum svo það sæist ekki hvað var í pökkunum ( hann vissi það nú nokkurnveginn samt :) ).
Þegar heim var komið eftir búðarferð þá bakaði ég skúffuköku og og við héldum smá "afmælisveislu", við og vinkona Dagbjartar.
Borðuðum köku og hann opnaði pakkana við mikinn fögnuð.

Svo á sjálfan afmælisdaginn ætlum við að fara í dýragarðinn og hafa gaman þar. 
Ég setti inn nokkrar myndir af afmælinu.

Ingi afi, það eru smá skilaboð frá Dagbjörtu. Hún segir að þú verðir bara að senda kexið og Cocoa puffsið úr því enginn er að borða þetta.   :)

Kv,
Lólý
Lólý og Andri
Afi Þykkvabæ skrifar ...
 
já ég lauma kexi í töskuna hennar ömmu og merki það Dagbjört, og amma veit ekki af því spurðu hana þegar hún kemur hvort hún sé með kex sendingu til þín og Alexanders frá afa, kveðja AFI
11. september 2008 klukkan 22:28

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...