leikskólinn :)
13. september 2008 klukkan 17:12
Jæja, þá fengum við bréf frá kommuninni í gær um leikskólapláss fyrir Alexander. Hann fær sem sagt pláss 16.okt. í leikskólanum sem er í götunni hjá okkur. Bara GEGGJAÐ. Það var nefnilega búið að segja við okkur að það væri alveg árs bið á þann leikskóla og að við mundum örugglega fá pláss fyrst í Kagså sem er í 10-15 min. hjólafjarlægð. Þannig að þegar ég fer að vinna verður þetta mun þægilegra að hafa þau sitthvoru megin við húsið okkar.
Nú er Guðný amma í heimsókn, við sóttum hana á flugvöllinn í gær og krakkarnir voru gjörsamlega að missa sig úr spenningi. Hún er svo að fara heim annað kvöld og Dagbjört spurði í dag hvort hún gæti ekki bara átt heima hjá okkur og afi gæti bara komið líka :) Yndislegt hvað allt er svo einfalt hjá þessum englum, þetta er aldrei neitt mál, bara að fara í stóru flugvélinni til Íslands.
Jæja, ég var bara rétt að leyfa ykkur að heyra fréttir.
Kv,
Lólý
Lólý og Andri

Kveðja frá Saurbæ
Sigrún
Bestu kveðjur til Carlsbergslands
Róbert Hátæknigoð