helgin
22. september 2008 klukkan 19:35
Jæja,þá er helgin búin og enn ein vikan að byrja. Þetta líður svo svakalega hratt að það liggur við að maður fylgist ekki með.
Um helgina fórum við fjölskyldan út á land og það var svo gott og gaman. Mér finnst alltaf svo gott að vera í sveitaloftinu :) , eins og kannski flestir vita. Við fórum upp í bústað til Maríu og Niels sem voru svo góð að vilja fá okkur í heimsókn.
Við vorum svakalega heppin með veður svo það var farið á ströndina og krakkarnir fengu að vaða í sjónum, veiða síli og búa til síki í sandinn. Á laugardagskvöldið sátum við fullorðna fólkið úti við smá varðeld og töluðum saman, það var nú aðeins hugsað til allra útileganna þar sem við vorum með arinkubbana á kvöldin (bara næs).
Áður en að við fjölskyldan fórum heim á sunnudeginum fórum við og skoðuðum smá kastala (Jægersprisslot eða eitthvað svoleiðis )og löbbuðum í skógi á bak við hann. Og vá hvað tréin hérna eru stór og flott. Auðvitað var svo ferðin enduð í ísbúðinni, enda varð maður að fá eitthvað kalt og gott eftir göngutúrinn í sólinni.
Það var myndataka í bekknum hjá Dagbjörtu í dag og það var mikil pæling og svaka æfing hjá henni í morgun hvernig hún ætti eiginlega að brosa á myndunum. Mamma á ég að brosa svona eða svona, en kannski svona, í þessu samtali sá ég mörg svipbrigði.
Ekki það að mér er alveg sama hvernig hún brosir mér finnst hún alltaf sætust :)
Jæja, bið að heilsa þangað til næst.
Kv,
Lólý
Lólý og Andri

Kveðja af klakanum
Signý og örugglega Ingvi
En gaman hvað þið eruð dugleg að blogga ;)
Kv, Inga binga