Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

smá misskilningur

29. september 2008 klukkan 15:32
Það er búin að vera mikil ráðgáta hérna á heimilinu því Dagbjört er búin að koma heim úr skólanum nokkrum sinnum og segja mér að það hafi verið "fussusvei" í dag og alltaf fá þau eitthvað í skólanum þegar það er t.d. sleikjó. Ég var að reyna að spyrja hana hvað þetta væri og hvað þau gerðu í þessum tíma. Það er bara misjafnt var svarið.
Á föstudaginn síðasta kom hún úr skólanum og það hafði verið fussusvei þann dag. Ég sagði við hana að á mánudaginn skyldi ég bara tala við kennarann og fá á hreint hvað þetta fussusvei er.
Svo við matarborðið um kvöldið þá erum við að tala um þetta og þá segir Dagbjört að María hafi sagt þetta orð þegar hún var að gefa Alexander afmælisgjöfina. Allt í einu kveikti Andri á perunni og spurði hvort hún væri að meina "fødselsdag" og þá sagði Dagbjört já. 
Ástæða þess að allir fengu eitthvað þegar það var "fussusvei" var sem sagt fødslesdag" (afmælisdagur). Þá koma krakkarnir og kennarar yfirleitt með eitthvað smá til að gefa bekknum þegar þau eiga afmæli.
En vá hvað var mikið búið að spá í þetta hérna á heimilinu.

Annars er allt gott að frétta, styttist í leikskólann hjá Alexander og ég byrja líklegast í dönskuskóla í október og það nám getur tekið eitt og hálft ár ef ég klára það allt. Ég ætlaði nú bara á námskeið en þetta er góður skóli og gott að fá dönskuna á hreint  :) . Andra gengur bara vel og Dagbjörtu líka.

Kv,
Lólý
Lólý og Andri
Árni Gunnar skrifar ...
Fussumsvei !
29. september 2008 klukkan 21:43
Sif skrifar ...
hahaha frábær saga :)
Gangi ykkur öllum vel í skólunum.. við sendum þér pistil með fréttum ef einhverjar verða eftir næsta frænkuklúbb :)
kys&kram
30. september 2008 klukkan 08:25
Sigrún skrifar ...
 
Fussumsvei - en yndislegt - svona gullkorn verða að geymast til að hlægja að síðar.
Gangi ykkur allt í haginn. Kveðja frá Saurbæ
30. september 2008 klukkan 23:27
Eva Lind SigurðardóttirFussusvei. Haha, hún er nú alveg dæmalaus hún Dagbjört Líf. Og æðislegt að Alexander sé að komast inn á leikskólann.
Gangi ykkur bara vel í öllum þessum skólum og við heyrumst :**
Elska ykkur <3
01. október 2008 klukkan 12:08
Hanna skrifar ...
 
Skemmtileg saga:-) Gullkorn!
Vildi bara senda smá saknaðarkveðju til ykkar. Nú fer að líða að árlegu bústaðaferðinni og þið ekki með...snökt, snökt...
Hafið það gott!
Kv. Hanna
01. október 2008 klukkan 14:33
Halla G skrifar ...
 
Snilld :) frábær krakkinn, enda svo vel ættuð ;) við eigum eftir að sakna þín Lólý í frænkuklúbbnum í næstu viku :( hafið það æði, bestu kveðjur úr kuldanum.
01. október 2008 klukkan 15:28
Halla G skrifar ...
 
.... alveg í lagi að klára að kveðja....
Halla Guðm
01. október 2008 klukkan 15:29

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...