Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

afmæli

07. október 2008 klukkan 18:39
Úff.... þá er maður búin að eiga afmæli einu sinni enn og orðin 31 árs gömul. Ég samviskusamlega bakaði skúffuköku og hafði fleiri kræsingar á boðstólnum og María og strákarnir komu í kaffi til okkar. Andri og krakkarnir gáfu mér rósir,alvöru badmintonspaða (mjög léttur og gott að halda á honum) og 12 flugur með, María og fjölskylda gáfu mér FULLT af snyrtivörum og pottablóm (sem ég vona að ég drepi ekki alveg strax).
Ástæðan fyrir spaðanum frá þeim er sú að ég og María ætlum að fara að æfa badminton í vetur og ég er ekkert smá spennt. Nú er sem sagt engin afsökun á því að byrja ekki að hreyfa sig :)

Nú eru bara tveir dagar í að mamma og Ingi komi og krakkarnir eru orðin ansi spennt. Svo það verður afmæli hjá Dagbjörtu um helgina og það verða fleiri en við fjölskyldan :)

Nú er Alexander komin með hjól sem passar fyrir hann svo það er verið að byrja að þjálfa hann og enn sem komið er er ekkert jafnvægi komið enda engin hjálparadekk og maður er bara 4 ára, svo er nú ekki búið að fara oft. Það er eins gott að byrja strax að þjálfa í þessari hjólamenningu, Dagbjört er nefnilega ekki svo örugg þegar maður er komin í umferðina (eða á hjólastígana).

Jæja bara smá fréttir til að segja eitthvað ;)

Kv,
Lólý
Lólý og Andri
Inga skrifar ...
 
Til hamingju með afmælið,
Afmæliskveðja
Inga Hall
07. október 2008 klukkan 20:24
Arnar ,kolla og fjölsk skrifar ...
 
Til hamingju með afmælið, bestu kveðjur. kolla.
07. október 2008 klukkan 20:32
Kristín skrifar ...
Innilega til hamingju með afmælið :) Gott að þú áttir góðan afmælisdag :)
08. október 2008 klukkan 10:20
Nonni, Eva og co skrifar ...
Til hamingju með daginn um daginn, ég fattaði það daginn eftir að þú hefðir nú átt afmæli deginum áður. Vonandi var þetta ánægjulegur dagur.
Kv, Eva, Nonni og börn
08. október 2008 klukkan 17:53

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...