Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

Af Iðnaðarmönnum ...

08. október 2008 klukkan 11:29
Hér í danmörku gildir sama regla og víðast annarsstaðar með iðnaðarmenn, þeir eru misjafnir eins og þeir eru margir.  Ég er samt á því að við hjónin höfum fengið 2 "misjöfnustu" iðnaðarmenn danmerkur í heimsókn.  Þannig er málið að þegar við fluttum inn var okkur gert að fylla út skýrslu um ástand íbúðarinnar og skila til húsvarðar.  Á skýrslu þessari tókum við fram að það væri rakablettur í loftinu í stofunni ( blettur á við 2 tíkalla hlið við hlið ).  Núna 2 mánuðum síðar fáum við svo húsvörðin í heimsókn til að kíkja á þetta.  Eftir smá skoðun segir hann  að hann muni fá iðnaðarmenn til að laga þetta fyrir okkur... þetta var á föstudaginn var.  Á mánudaginn komu svo iðnaðarmennirnir, 2 stykki.  Þeir gengu inn í stofuna, horfðu á blettinn og sögðust svo ætla að koma daginn eftir ( s.s á þriðjudag ).  Á þriðjudaginn kom svo annar þeirra og tilkynnti konu minni það að bíllinn þeirra hefði bilað og þeir væru með allar græjurnar sínar í honum og því gætu þeir ekki gert þetta núna, hann hefði bara fengið annan bíl til þess að geta skutlast og látið hana vita því ekkert hafði hann símanúmer til að hringja í... svona var hann nú snjall ( látum það liggja á milli hluta að allar upplýsingar um Gyngemose parkvej 29 5th er að finna í símaskránni ).  Í dag komu svo þessir tilvonandi Nóbelsverðlaunahafar í faglegri verkfræði til þess að laga blettinn og nota bene á fína iðnaðarmannabílnum sínum.  Eina sem þeir voru nú samt með í höndunum var borvél og eftir að hafa staðið og horft á blettinn í 48 sek komust þessar mannvitslægðir að því að þeir næðu líklegast ekki upp í loftið án þess að standa á einhverju og því benti annar þessara snillinga á leðurklæddu eldhús/borstofustólana okkar og spurði hvort hann mætti fá einn til að standa á.  Við sögðum þeim að við ættum litlar tröppur sem þeir gætu fengið og voru þeir sáttir við það "því það getur jú verið svoldið valt að standa á borðstofustól ".. aha.  Á meðan annar boraði í rakablettinn horfði hinn á.  Þegar gatið hafði verið borað var horft í sotla stund og svo sagði sá sem boraði " hvað.. það er ekkert vatn" og horfði svo á okkur eins og við hefðum verið að plata þá þangað í erindaleysu.  Eftir að hafa báðir horft á hið nýboraða gat í rakablettinum ákváðu þeir að bora annað gat við hliðina á hinu.  Þegar því var lokið sögðu þeir að það væri best að láta þetta bara þorna í viku og svo myndu þeir koma og laga þetta.  Á leiðinni út spurði þögla týpan svo hvort við ættum ekki örugglega ryksugu ( því jú þegar borað er í loft þá vill nú allt verða soldið rykugt ), jú svöruðum við, "flott" sagði hann þá " við sjáumst eftir viku" og þar með fóru þessir gullmolar danskrar iðnaðarmennsku.

Hér fyrir neðan má svo sjá mynd af verkinu sem tók snillingana 3 heimsóknir að framkvæma.






Kv.
Andri
Lólý og Andri
Halla Guðm. skrifar ...
 
Bahahahahaaaa :) spennandi að vita hvað þeir gera næst ;)
góðar kveðjur úr stuðinu heima.
08. október 2008 klukkan 21:47

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...