Óvænt fjölgun í fjölskyldunni
11. október 2008 klukkan 10:08
Síðustu helgi fórum við með Dagbjörtu í gæludýraverslun. Þar fékk hún að velja sér hamstur í afmælisgjöf ( en hún á einmitt afmæli í dag ). Hamsturinn sem varð fyrir valinu fékk nafnið Rósa. Okkur hefur fundist frá degi eitt Rósa vera nokkuð skrýtinn hamstur ( allavega miðað við þá sem við höfum átt áður ). Hún rótaði öllum spæni í búrinu í eitt horn, reyndi oftast að bíta okkur ef við komum nálægt henni og safnaði mat á furðulegustu staði í búrinu ( svona svo að við næðum honum örugglega ekki af henni ). Skýringin á þessu hegðunarmynstri kom svo i ljós í gær þegar við sáum að í hreiðrinu hennar voru hvorki fleiri né færri en 7 litlir bleikir og blindir hamstra ungar. Nýbakaðri móður virðist heilsast vel og ver hreiður sitt með kjaft og klóm. Núna bíðum við fjölskyldan bara spennt eftir að sjá hve margir ungana komast á legg, það kemur í ljós á næstu vikum. Dagjbört er nátturlega mjög spennt yfir þessari óvæntu fjölgun og tilkynnti okkur það í gær að nú væri hún orðin amma og við Lólý þá langafi og langamma... ekki ónýtt það rétt rúmlega 31 árs.
En Dagbjört mín til hamingju með 8 ára afmælið og barnabörnin
Kv.
Andri
En Dagbjört mín til hamingju með 8 ára afmælið og barnabörnin
Kv.
Andri
Lólý og Andri

kærar kveðjur frá stoltri langalangaömmu og langala.....afa.í Hafnaf.
Kær kveðja frá okkur hér á Eskifirði
Kv.
Andri
Við óskum Dagbjörtu innilega til hamingju með 8 ára afmælið á laugardaginn og vonum að hún hafi notið dagsins.
Gaman að heyra af fjölguninni í fjölskyldunni og biðjum kærlega að heilsa hinni nýbökuðu móður og ungunum hennar átta og vonum að þeir braggist !!
Gamla settið, þ.e. langamman og langafinn og Alexander ömmubróðir fá líka sínar kveðjur ;-)
Hafið það sem allra best,
Berglind og Elli (sem eru hvorki amma og afi né langamma og langafi)
og börnin þeirra tvö..........
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ DAgBJÖRT LÍF !!!!!
og til hamingju með ömmu titilinn he he ;)