loksins....
Jæja loksins skrifa ég.... ég hef nefnilega verið að reyna að láta Andra segja eitthvað sniðugt hérna en það gengur eitthvað illa :)
Krökkunum gengur rosa vel og tala meira með hverjum deginum, við erum búin að fara á jólaföndur og luciuhátið hjá Dagbjörtu og hjá Alexander var bæði luciuhátið og svo fórum við í húsið sem hann fer í þegar hann fer í skóginn í föndur og Alexander gerði jólaskreytingu með kerti.
Það var rosa gaman að sjá húsið og garðinn sem þau fara í þegar þau eru í skógargrúppunni, alveg geggjaður garður með engum leikföngum heldur bara tré og kaðlar í trjánum og svoleiðis.
Þá eru jólin alveg að koma og ég ætla bara að segja það hér og nú að ég sendi ekki nein jólakort í ár svo hér með óskum við öllum sem við þekkjum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Ég er búin að nánast öllu fyrir jólin, ætla að senda smá pakka til Íslands eftir helgi og þá á ég eftir að skreyta jólatréð og pakka inn fyrir krakkana, gott að vera í rólegheitunum.
Annars veit ég ekki alveg hvað ég á að segja meira, það gengur allt sinn vanagang og við erum bara ánægð hérna og fórum af skerinu á hárréttum tíma.
Biðjum að heilsa öllum,
Kv, Lólý

alveg rétt´, þið fóruð á hárréttum tíma, lítið spennandi í gangi hérna núna :(
nema smá stór partý og svoleiðis :) maður má ekki alveg gleyma að skemmta sér og öðrum :) kveðjur í kotið.
Það var gaman að hitta ykkur um daginn. Okkar bestu óskir um Gleðileg Jól.
Kveðja
Doddi og Gunný