Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

Jól og áramót búin...

01. janúar 2009 klukkan 16:09
Sæl öll sömul og gleðilegt nýtt ár. 

Við erum búin að hafa það svakalega fínt hér um hátíðarnar. Á aðfangadag vorum við 4 heima og það var svaka kósí hjá okkur, samt skrítið að hafa engan Magga afa og svo kíkti enginn í kaffi eftir pakkaupptöku eins og Guðný amma og Ingi afi hafa gert ef við erum heima á aðfangadag. Á jóladag og annan í jólum vorum við sko bara heima á náttfötunum og lágum í LETI. Eftir jól skelltum við okkur í jólatívolí og það var frábært, fórum í fullt af tækjum og þá sérstaklega Dagbjört sem var bara gjörsamlega óð í öllu og sló okkur þremur alveg út. Svo er alltaf svona jólaland sem var gaman að skoða og fullt af ljósum út um allt.
Ég og Dagbjört fórum í bíó að sjá High school musical 3 (auðvitað) og það var voða gaman að fara svona bara tvær og njóta þess að vera saman.
Um áramótin fórum við með Maríu systir til vinkonu hennar og þar vorum við alveg 10 fullorðin og 8 börn svo það var fjör á bæ. Þetta voru fín áramót og var skálað bæði fyrir dönskum og íslenskum áramótum. Alexander sofanði 5 mínútur fyrir miðnætti og var alveg búin á því en Dagbjört vakti til hálf þrjú. Þetta voru fyrstu áramótin hennar Dagbjartar sem hún fór út um miðnætti því hún hefur alltaf verið svo svakalega hrædd við þessar sprengjur og lætin í kringum þetta. Ég held það hafi verið vegna þess að það var ekki mikið sem var sprengt nálægt okkur.

Krakkarnir voru ánægðir með allar jólagjafirnar, já og við auðvitað líka. Það eina sem Dagbjört vonaðist til að fá og fékk ekki frá okkur var Nintendo DS. En hún er ákveðin í því núna að safna sér pening til að fá tölvuna. Þannig að nú er hún svo dugleg með heimilisverkin og svo hjálpsöm af því hún veit hún fær smá pening fyrir að hjálpa okkur. 

Við þökkum kærlega fyrir okkur og öll jólakortin.

Kv,
Lólý
Lólý og Andri
Nonni, Eva og co skrifar ...
 
Hæ hæ fjölskylda!
Gleðileg jól og farsælt komandi ár, takk fyrir öll gömlu góðu árin. Við vorum svo sein að gera jólakortin að það fór ekkert kort út fyrir landssteinana en vonandi verðum við fyrr með jólakortin á næsta ári.
Við biðjum voðalega vel að heilsa yfir hafið.
Kv, Eva, Nonni og co
01. janúar 2009 klukkan 23:19

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...