Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

er að koma gestur :)

08. janúar 2009 klukkan 20:07
Halló...

Já það er sko að koma gestur 16.jan. Það er Guðný amma og allir rosalega spenntir. Það eina sem Dagbjört biður ömmu að koma með er lifrarpylsa með grjónagrautnum :). Alexander biður ekki um neitt nema í dag þá sagði hann að amma mætti alveg koma með Karíus og Baktus sem hægt væri að horfa á, við eigum nefnilega bara geisladiskinn. Það er verið að spila þetta á leikskólanum og hann skildi ekki söguna en þekkti strax öll lögin. Fóstrunum fannst mjög athyglisvert þegar ég kom að sækja hann einn daginn og þá kom hann hlaupandi til mín og sagði að þau væru að hlusta á söguna, vissu ekki að hann þekkti þetta.

Annars er allt gott að frétta, krakkarnir mjög ánægðir að fá rútínuna sína aftur og komast í skólana sína. Andri er í prófunum núna, er búin með eitt sem honum gekk rosa vel í og fer svo í annað á morgun og ég efast ekki um að hann standist það með glæsibrag. Ég er ENN heima og er að leita að vinnu.

Já og ég var að setja inn eitthvað að myndum á picasa síðuna okkar. Linkurinn á hana er efst til hægri.

Kv,
Lólý 
Lólý og Andri
Nonni, Eva og co skrifar ...
 
En gaman að amma Guðný sé að koma, loksins fáið þið gest.
Við vorum að skoða myndirnar frá desember og okkur finnst Alexander alveg eins og pabbi sinn að það er eiginlega bara fyndið.
Við biðjum rosalega vel að heils yfir hafið, Nonni, Eva og co
09. janúar 2009 klukkan 23:11

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...