Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

allt gott....

23. janúar 2009 klukkan 21:20
halló....

Þá eru nokkrir dagar síðan mamma fór og varð frekar tómlegt þegar hún var farin, var voða gott að hafa hana og krakkarnir ánægðir með að hafa hana, enda fengu þau Cocoa puffs, lifrapylsu og íslenskt nammi.
Andri náði prófunum og er byrjaður á næstu önn og allt gengur vel.  
Alexander er búin að vera eitthvað leiður að fara í leikskólann alla vikuna, var reyndar skástur í morgun. En þau tala um á leikskólanum að hann sé soldið farin að tala dönskuna svo það á vonandi eftir að verða auðveldara fyrir hann. Alltaf erfitt að geta ekki tjáð sig almennilega t.d. ef eitthvað er að.
Dagbjört er bara ánægð í skólanum og er svo spennt núna því hún fer til Íslands í febrúar þegar vetrarfríið er hérna, verður í viku og nú talar hún ekki um annað en þessa ferð og hvað hún vill gera á meðan hún er á Íslandi.
Ég er bara heima og er ennþá að leita að vinnu, var í einu viðtali á mánudaginn og er að bíða eftir svari þar ef það kemur þá svar. Þetta er að verða annsi langur og erfiður tími að vera heima og gera ekkert, ekki alveg fyrir mig. Ég fer svo í próf í dönskuskólanum annan og fjórða febrúar og eftir þau veit ég hvort ég kemst upp á næsta stig. En ég hef sosum litlar áhyggjur af þessum prófum.

En annars biðjum við að heilsa öllum þangað til næst...

Kv,
Lólý 
Lólý og Andri
Nonni, Eva og co skrifar ...
 
En spennandi fyrir Dagbjörtu að koma í heimsókn til Íslands. Vonandi færð þú vinnu fljótlega því það er hundleiðinlegt að gera ekkert og dagarnir eru svoooo lengi að líða.
Vestu kveðjur yfir hafið.
Kv, Eva, Nonni og co
24. janúar 2009 klukkan 12:00
Sif skrifar ...
Til hamingju með vinnuna !!!!!
ekkert dregur mann jafnmikið niður og að hafa lítið að gera...

gó girl !! eða gå pige ! eins og þeir segja þarna í baunalandi .. eða hvað ??
26. janúar 2009 klukkan 12:49
Hanna , Gummi og co. skrifar ...
 
Elsku Lólý, Andr, Dagbjört og Alexander.i
Mig langaði bara að kasta á ykkur kveðju það er svo langt síðan við heyrðumst síðast. Maður fylgist með ykkur úr fjarlægð en þið eruð sko ekki langt frá manni í hugsun. Vildi að við familían gætum kíkt á ykkur... snökt,snökt...
Hafið það sem allra best.
Ástar- og saknaðarkveðja frá Fróni.
27. janúar 2009 klukkan 13:10

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...