Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

halló....

28. febrúar 2009 klukkan 19:46
longtæmnosí...

Hér er allt sæmilegt að frétta. Ég að vinna, Andri í skólanum svona þegar ekki eru veikindi og Alexander og Dagbjört í sínum skólum. Vinnan hjá mér byrjaði nú ekki vel, ég var búin að vera veik 4 daga fyrir fyrsta vinnudaginn, mætti svo hálf veik í vinnuna og var í þrjá daga (mán, þri,mið,), á fimmtudeginum var ég orðin svo slöpp að Andri eiginlega bannaði mér að fara í vinnuna. Þá ákvað ég að fara til læknis þar sem þetta var búin að vera vika og ég nýbyrjuð í vinnunni. Útúr læknisheimsókninni kom að ég var komin með lungnabólgu (enda að hósta úr mér veit ekki hverju), á að vera heima í einhvern tíma meðan ég er að jafna mig og það tók frá fimmtudegi fram á mánudag. Loksins gat ég farið að mæta í vinnuna þó máttlaus væri ennþá en maður lét sig hafa það. En nú er ég sko komin með fullan kraft aftur (fyrir utan letina:) hehe  ). Alexander var veikur með mér fyrstu dagana en hann var ekki lengi að ná sér uppúr þessu. Og hefur nota bene ekkert notað púst í vetur 7 9 13.

Dagbjört fór í heimsókn til Íslands í vetrarfríinu og skemmti sér konunglega og var svakalega ánægð að hitta alla. Var voða spennandi að fara ein með vinkonu sinni og bróður hennar sem er 12 ára í flugvélina, já þetta var sko ekki mikið mál hjá henni. Henni fannst hún alveg orðin 13 ára að fara svona án okkar :) .

Nú er Dagbjört komin með hlaupabóluna og er með soldið mikið að bólum (7 bara á enninu) að mér finnst en hún er rosa dugleg að klóra sér ekki í bólunum, en þeir eru aðalega á bakinu, maganum og höfðinu. En hún er að sleppa við hita og svoleiðis, borðar bara lítið.

Svo er gaman að segja frá því að við erum að fá tengdó í heimsókn um páskana, það verður rosa gaman að fá þau þar sem það er langt síðan við hittumst síðast.

Annars er bara allt að ganga sinn vanagang hérna, alt i orden bara.

Þangað til næst,
Kveðja, Lólý
Lólý og Andri
Sif skrifar ...
Gott að heyra að allt gengur vel :)
ég var farin að halda að mamma þín hefði tekið leyniorðið af blogginu með heim :) :)
Allt í besta hér líka...

knús&kiss á línuna..
02. mars 2009 klukkan 08:14
Nonni, Eva og co skrifar ...
 
Gott að heyra loksins frá ykkur, kíkjum reglulega inn.
Ekki gott að fá lungnabólgu nýbyrjuð í nýrri vinnu en gott að þú ert orðin hress.
Vonandi fer Dagbjörtu að batna af bólunum.
Kveðja frá okkur öllum.
02. mars 2009 klukkan 17:59
Sigrún skrifar ...
 
AH, loksins eitthvað að frétta, en vonandi er allt veikindastand að baki núna. Hugsuðum mikið til ykkar s.l. helgi, þegar vélsleðarnir voru liðkaðir - bara á túninu.
Knús á liðið.
04. mars 2009 klukkan 00:45
Kæru vinir,
Alltaf gaman að fá fréttir af ykkur, vonandi gengur allt vel núna og allir í sínu besta formi.
Allt gott að frétta héðan en H&M syndromið mitt er orðið svo svakalegt að ég vona að ég verði bráðum send í heimsókn "samkvæmt læknisráði".
Ætli það sé ekki hægt?
kv. Berglind
10. mars 2009 klukkan 11:33

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...