Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

vor og blíða

02. apríl 2009 klukkan 21:15
Já sæl..

það er nú orðið askoti langt síðan við skrifuðum hérna inn... eeeenn..

Héðan er allt gott að frétta, vorið er komið og sólin búin að skína í 4 daga og á tímabili er meiraðsegja stuttermabola veður.  Um helgina er svo spáðu heiðskýru og um 16 stiga hita ( mont mont ).

En helstu fréttir úr mars mánuði.

Dagbjört fékk hlaupabóluna nokkrum dögum eftir að hún kom frá íslandi og ég ( Andri ) var heima með hana í viku, þar sem við dúlluðum okkur við spil og sjónvarpsgláp. Ég gerði nú þau mistök að kenna henni Monopoly og gerði hún sér lítið fyrir og rústaði mér í því. Þegar við gerðum upp í lokin kom i ljós að eftir að ég hafði selt allt mitt upp í skuld við hana þá skuldaði ég henni ennþá 2000 Monopoly krónur. Hún sagði að það væri í lagi, ég gæti bara borgað henni með alvöru peningum og hún gaf sig ekki fyrr en hafði borgað henni. Sem betur fer náði ég nú að semja skuldina niður í 20 kr. danskar. Maður sér það því á henni að annaðhvort verður hún svakalegur fjármálasérfræðingur... eða handrukkari.
En að öðru leiti stóð hún sig vel stelpan og passaði mikið uppá að klóra ekki í bólurnar.
Þegar ég hafði svo náð að vera í skólanum í viku þá fékk Alexander hlaupabóluna.. og það var nú ekki eins mikil paradís og hjá Dagbjörtu. Hann fékk mikið fleiri bólur og klæjaði svo um allan skrokkinn. Við vorum með allskyns krem og duft til að bera á hann samkv. læknisráði og svo kláðastillandi lyf svo hann gæti sofið. Já þetta var sko erfið vika fyrir hann greyið.
En núna eru þau bæði hress og kát og gengur vel í skólunum sínum.
Reyndar fékk ég símtal frá leikskólanum á miðvikudaginn, þar sem mér var tjáð að í skógarferð þá hefði Alexander stungið af og týnst í 5 mínútur.. í skóginum .. og nota bene .. þetta er ekki íslenskur "skógur" þar sem maður stendur bara upp ef maður týnist. Ég var s.s beðinn um að tala við hann og brýna það fyrir honum að það megi ekki fara frá hópnum. Þegar ég talaði svo við Alexander um þetta mál og spurði hvort hann hefði týnst þá þóttist hann ekkert vita um málið. En þegar ég sagði honum að fólkið á leikskólanum hefði sagt mér að hann hefði týnst vildi hann aðeins kannast við málið, en sagði samt að það hefðu nú verið allir hinir og fólkið sem var týnt. S.s hann vissi allan tímann hvar hann var.. hinir voru týndir. Þannig að maður sér að hann verður annaðhvort Stjórnmálamaður eða Jón Ásgeir.
Svo vorum við Lólý áðan á foreldrafundi með kennaranum hennar Dagbjartar og þar kom fram að henni gengur bara mjög vel í skólanum. Á reyndar soldið erfitt með einbeitingu og að koma sér í að gera hlutina og finnst gaman að tala. Veit ekki hvaðan hún hefur það.. líklegast frá móður sinni ( hóst... ).

Krakkarnir eru svo mjög spenntir því að í næstu viku koma mamma og pabbi og verða hjá okkur í 9 daga.  Það verður mjög gaman að fá "gamla settið" og þvæla þeim um köben og smá til svíþjóðar ef planið stenst.

Annars er af okkur foreldrunum að frétta að Lólý vinnur og vinnur og ég skóla og skóla. Er á fullu að reyna að vinna upp þessar 2 vikur sem ég hef misst úr vegna veikindanna, en ég hef svo sem engar áhyggjur af því að ná þessu ekki upp.. enda er ég bráðgáfað kvikyndi..

....svona þegar ég næ að einbeita mér og kem mér í það og er ekki að tala ;)

Kv.
Andri

Lólý og Andri
Halla G skrifar ...
 
Heiiiiiiiijjjjjjjjjj...... gaman að fá fréttir hér inn :o)
væri svona pínu til í að skipta við ykkur núna, þeas. búa þarna úti.. ísland er ekkert spennó. ef mér tekst að verða þarna á ferðinni í byrjun júlí þá bjalla ég á ykkur :o)
næstumþvívorkveðjur
hafið það æði í danska vorinu
03. apríl 2009 klukkan 12:44
Halla G skrifar ...
 
þetta var sko ég.....
Halla Guðm. :o)
03. apríl 2009 klukkan 12:45
Sif skrifar ...
 
Gott að sjá hreyfingu hérna inni :) hér er komið vor í gluggana... svo kemur kannski vor úti... reyndar sýnist mér á fjölda mótorhjóla á götunni að það sé heldur betur farið að vora :) sem er fínt... við erum búin að skipta um olíu og snurfusa hjólin okkar og alveg tilbúin fyrir vorið... tókum reyndar smá forskot á sæluna á þorranum og fórum Hvalfjarðarhringinn með meiru þann 21.febrúar :)
Held það bresti á með vori eftir kuldakastið sem er spáð núna....
eða ég vona það allavega...

Hafið það huggulegt um páskana sem og framvegis :)
Kveðjur úr firðinum.... Sif
06. apríl 2009 klukkan 09:18

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...