jæja já......huhumm
14. júní 2009 klukkan 20:15
Sæl öll, sorry hvað við erum léleg að skrifa hérna en maður kemst bara ekki af fésinu :) hehehe.
Hér er allt fínt að frétta síðan síðast, allt gengur sinn vanagang eins og maður segir.
Andri vinnur og er í skólanum, er í prófum núna og tekur síðasta prófið á næsta þriðjudag, er búin með 3 próf og þau hafa gengið rosa vel, meira að segja fyrsta prófið var munnlegt og það í stærðfræði og gekk glimrandi. Sko minn kall :)
Ég er að vinna eins og síðast og fékk rosa launahækkun síðustu mánaðarmót. Það á að fara að breyta aðeins hjá mér í vinnunni og á ég að geta leyst af hina og þessa af sem eru á vegum ISS í húsinu, t.d. í móttökuna, póstinn og svo þann sem sér um öll ljósritunarherbergin og pantanir í þau. Svo það verður gott að komast úr þrifunum og breyta til, seinna segja þeir svo einhverjum upp og ráða mig bara þar, er það ekki bara :)
Dagbjörtu líður vel og var að skipta um skólastofu, er sem sagt komin í húsið þar sem eldri bekkirnir eru og er rosa stollt af því. Hún er farin að æfa fótbolta og er að fíla það rosa vel, sem ég átti aldrei von á en svona er þetta. En hún er svaka spennt yfir fótboltanum og svo stollt þegar hún skorar :)
Í dag tók hún þátt í hlaupi til styrktar vörn gegn einelti og það var hlaupin kílómetri, við markið var Mary prinsessa og gaf verðlaunapening. Dagbjört var SVO spennt að hitta prinsessuna og svo við markið þá var risa bangsi við markið að hjálpa Mary og hann setti pening á Dagbjörtu. Svo þegar hún kom til mín þá spurði ég hvort hún hefði séð prinsessuna en hún sagði nei, hvar var hún. Svo ég fór með hana og sýndi henni Mary og þá sagði Dagbjört " er þetta hún, ég hélt að prinsessur væru alltaf í kjólnum" hahaha bara yndislegust.
Skólinn klárast hjá henni 26 júní og þá tekur bara daggæslan við. Hún verður þar í allt sumar þar sem við eigum ekkert frí inni, það lokar reyndar í eina viku og þá ætlar tengdapabbi að vera svo yndislegur að koma og vera með krakkana.
Alexander gengur vel og er glaður á leikskólanum. Við komum að sækja hann í síðustu viku og þá koma einn leikskólakennarinn og bað okkur að tala við hann. Þá hafði hann falið sig í garðinum þegar allir fóru inn og þær fóru í garðinn þegar þær tóku eftir því að hann var ekki með og kölluðu oftar en einu sinni en ekkert svar. Það leið dágóður tími þar til hann kom í leitirnar og þá létti þeim mjög því þær voru farnar að halda að hann hefði komist einhvernveginn út úr garðinum. Þegar við spurðum hann af vherju hann hefði verið að fela sig þá sagði hann að hann hefði nú bara verið að bíða eftir okkur. Og tónninn var eins og þetta væri nú ekkert stórmál.
En þetta var nú rætt og hann lofaði að gera þetta ekki aftur, grallarinn sá. Hann á það nefnilega til að fela sig, sérstaklega ef hann sér skemmtilegan fatarekka í búðum. Svo leitar maður og kallar og er komin í hálfgert panik þegar hann kemur og segir "ég er hér".
Hann tekur svo líka eina viku með Hansa afa því leikskólinn lokar líka í eina viku og þeir passa sig á að hafa það sömu vikuna og gæslan hjá Dagbjörtu.
Gulla bestasta vinkona mí er svo að koma með Hlyn son sinn ( og VONANDI manninn) í byrjun júli að það er mikil tilhlökkun á bænum. Þau verða hjá okkur í 5 daga :)
Svo eins og ég sagði áðan kemur Hansi tengdapabbi um miðjan júlí og ætlar að vera með krakkana fyrir okkur og hann verður í tvær vikur hjá okkur :)
Jæja nóg í bili, er farin að sofa.
Kv. Lólý

Lólý og Andri

Spurning hvort þið setjið comment á feisbókina þegar eitthvað er að frétta hér ;o)
en maður tékkar samt alltaf hér ... vonar að eitthvað fréttnæmt sé að gerast hjá ykkur. Hafið það annars bara æðislegt í danska sumrinu ... HG