Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

.. og spennan magnast...

31. júlí 2008 klukkan 19:55
Fórum í dag með henni Sigrúnu Þormar að skrá okkur inn í landið og fá danska kennitölu.  Sigrún  sér um að flytja íslendinga til Danmerkur ( bland andet, sjá www.sigrunthormar.dk ).  Þessi kona er alger snillingur og er búið að vera frábært að hafa hana við hendina.  Hún s.s sá um að finna íbúð og sækja um húsaleigubætur...barnabætur.. hjólabætur.. og .. já bara allt sem þurfti að sjá um.. og meira til.  En s.s í dag þá skráðum við okkur inn, sóttum um leikskóla fyrir Alexander .. og fórum og fengum lyklana af nýju íbúðinni.  Fórum auðvitað og skoðuðum og maður lifandi hvað hún er flott.  útsýnið er heldur ekki ónýtt, enda íbúðin á 5 hæð.  Sem reyndar er ekki alveg algott, því að lyftan er ekki stór og það eru einhverjir hlutir sem við þurfum að ganga með upp ( einhverjir sjálfboðaliðar ? ).  En kallinn er í góðu formi ( heil 109 kg ) og svo hef ég mössuðustu konu norðan alpafjalla til að hjálpa mér.

Ég set inn myndir af íbúðinni á morgun.

Kv.
Andri
Lólý og Andri

Skoðunarferð um nýja hverfið

30. júlí 2008 klukkan 15:28
Jæja þá erum við búin að sjá hverfið sem við flytjum í á föstudaginn. Okkur líst bara rosalega vel á þetta, fínt og rólegt hverfi, skólinn og leikskólinn á næsta horni og stutt í strætó. Það eina sem við fundum ekki nálægt var matvörubúð en það getur vel verið að hún sé einhversstaðar þarna rétt hjá án þess að við vitum það.
Við hittum svo húsvörðinn klukkan 17 á morgun og fáum lyklana. En gámurinn kemur ekki fyrr en klukkan 13 á föstudag.

Bið að heilsa í bili.

Kv,
Lólý
Lólý og Andri

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...