Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

smá misskilningur

29. september 2008 klukkan 15:32
Það er búin að vera mikil ráðgáta hérna á heimilinu því Dagbjört er búin að koma heim úr skólanum nokkrum sinnum og segja mér að það hafi verið "fussusvei" í dag og alltaf fá þau eitthvað í skólanum þegar það er t.d. sleikjó. Ég var að reyna að spyrja hana hvað þetta væri og hvað þau gerðu í þessum tíma. Það er bara misjafnt var svarið.
Á föstudaginn síðasta kom hún úr skólanum og það hafði verið fussusvei þann dag. Ég sagði við hana að á mánudaginn skyldi ég bara tala við kennarann og fá á hreint hvað þetta fussusvei er.
Svo við matarborðið um kvöldið þá erum við að tala um þetta og þá segir Dagbjört að María hafi sagt þetta orð þegar hún var að gefa Alexander afmælisgjöfina. Allt í einu kveikti Andri á perunni og spurði hvort hún væri að meina "fødselsdag" og þá sagði Dagbjört já. 
Ástæða þess að allir fengu eitthvað þegar það var "fussusvei" var sem sagt fødslesdag" (afmælisdagur). Þá koma krakkarnir og kennarar yfirleitt með eitthvað smá til að gefa bekknum þegar þau eiga afmæli.
En vá hvað var mikið búið að spá í þetta hérna á heimilinu.

Annars er allt gott að frétta, styttist í leikskólann hjá Alexander og ég byrja líklegast í dönskuskóla í október og það nám getur tekið eitt og hálft ár ef ég klára það allt. Ég ætlaði nú bara á námskeið en þetta er góður skóli og gott að fá dönskuna á hreint  :) . Andra gengur bara vel og Dagbjörtu líka.

Kv,
Lólý
Lólý og Andri

helgin

22. september 2008 klukkan 19:35
Jæja,þá er helgin búin og enn ein vikan að byrja. Þetta líður svo svakalega hratt að það liggur við að maður fylgist ekki með.

Um helgina fórum við fjölskyldan út á land og það var svo gott og gaman. Mér finnst alltaf svo gott að vera í sveitaloftinu  :) , eins og kannski flestir vita. Við fórum upp í bústað til Maríu og Niels sem voru svo góð að vilja fá okkur í heimsókn.
Við vorum svakalega heppin með veður svo það var farið á ströndina og krakkarnir fengu að vaða í sjónum, veiða síli og búa til síki í sandinn. Á laugardagskvöldið sátum við fullorðna fólkið úti við smá varðeld og töluðum saman, það var nú aðeins hugsað til allra útileganna þar sem við vorum með arinkubbana á kvöldin (bara næs).
Áður en að við fjölskyldan fórum heim á sunnudeginum fórum við og skoðuðum smá kastala (Jægersprisslot eða eitthvað svoleiðis )og löbbuðum í skógi á bak við hann. Og vá hvað tréin hérna eru stór og flott. Auðvitað var svo ferðin enduð í ísbúðinni, enda varð maður að fá eitthvað kalt og gott eftir göngutúrinn í sólinni.

Það var myndataka í bekknum hjá Dagbjörtu í dag og það var mikil pæling og svaka æfing hjá henni í morgun hvernig hún ætti eiginlega að brosa á myndunum. Mamma á ég að brosa svona eða svona, en kannski svona, í þessu samtali sá ég mörg svipbrigði.
Ekki það að mér er alveg sama hvernig hún brosir mér finnst hún alltaf sætust :)

Jæja, bið að heilsa þangað til næst.

Kv,
Lólý
Lólý og Andri

myndir

19. september 2008 klukkan 07:12
Sæl öll sömul,

Ég hef ákveðið að setja framvegis bara myndir inn á picasaweb. Það er miklu einfaldara að setja inn myndir þar.
Það er linkur vinstra megin á síðunni fyrir myndasíðuna.
Ég var að setja inn fullt af nýjum myndum í gær, alveg frá því í mai.

Kv,
Lólý
Lólý og Andri

leikskólinn :)

13. september 2008 klukkan 17:12
Jæja, þá fengum við bréf frá kommuninni í gær um leikskólapláss fyrir Alexander. Hann fær sem sagt pláss 16.okt. í leikskólanum sem er í götunni hjá okkur. Bara GEGGJAÐ. Það var nefnilega búið að segja við okkur að það væri alveg árs bið á þann leikskóla og að við mundum örugglega fá pláss fyrst í Kagså sem er í 10-15 min. hjólafjarlægð. Þannig að þegar ég fer að vinna verður þetta mun þægilegra að hafa þau sitthvoru megin við húsið okkar.

Nú er Guðný amma í heimsókn, við sóttum hana á flugvöllinn í gær og krakkarnir voru gjörsamlega að missa sig úr spenningi. Hún er svo að fara heim annað kvöld og Dagbjört spurði í dag hvort hún gæti ekki bara átt heima hjá okkur og afi gæti bara komið líka :)  Yndislegt hvað allt er svo einfalt hjá þessum englum, þetta er aldrei neitt mál, bara að fara í stóru flugvélinni til Íslands.

Jæja, ég var bara rétt að leyfa ykkur að heyra fréttir.

Kv,
Lólý
Lólý og Andri

Nokkrir mikilvægir punktar í lífinu..

07. september 2008 klukkan 08:04
67 ára fer maður á ellilífeyrir...
20 ára má maður kaupa áfengi ( löglega ).
18 ára verður maður lögráða.
17 ára fær maður bílpróf..
14 ára er maður fermdur..
6 ára byrjar maður í skóla..
4 ára þá hættir maður að gráta þegar verið er að setja sápu í hárið í sturtunni.... eða svo segir Alexander allavega og hann ætti að vita það.. enda 4 ára í dag.

Til hamingju með daginn kúturinn minn.

Kv.
Andri
Lólý og Andri

afmæli í dag

06. september 2008 klukkan 17:01
Halló allir.

Á morgun á Alexander afmæli svo a ðvið fórum í Toys´r´us í dag og hann fékk að sýna okkur hvað hann vildi í gjafir frá okkur, ömmu, afa og afa. Hann labbaði um allt og vildi náttúrulega helminginn úr búðinni. Eftir ferðina í gegnum búðina fór ég með Alexander út úr búðinni og Andri fór inn og keypti það sem búið var að ákveða að kaupa. Svo var pakkað inn á staðnum svo það sæist ekki hvað var í pökkunum ( hann vissi það nú nokkurnveginn samt :) ).
Þegar heim var komið eftir búðarferð þá bakaði ég skúffuköku og og við héldum smá "afmælisveislu", við og vinkona Dagbjartar.
Borðuðum köku og hann opnaði pakkana við mikinn fögnuð.

Svo á sjálfan afmælisdaginn ætlum við að fara í dýragarðinn og hafa gaman þar. 
Ég setti inn nokkrar myndir af afmælinu.

Ingi afi, það eru smá skilaboð frá Dagbjörtu. Hún segir að þú verðir bara að senda kexið og Cocoa puffsið úr því enginn er að borða þetta.   :)

Kv,
Lólý
Lólý og Andri

og bjallan hringdi....

02. september 2008 klukkan 18:48
Í dag kom í fyrsta skiptið stelpa að spyrja eftir Dagbjörtu. Hún er sem sagt ári eldri, íslensk og flutti í götuna um helgina. Dagbjört var mjög glöð að einhver skildi koma og vildi leika við hana og ég bara held að þær eigi soldi vel saman. 
Það eru nefnilega rosa viðbrigði fyrir hana að geta ekki farið til allra vinkvennanna eins og hún gerði heima.

Alexander minn var ekki alveg jafn heppinn í dag því hann var í tölvunni og hann var svo mikið að hoppa í leiknum að hann datt úr sófanum þegar hann var komin með fjarstýringuna svo langt upp í loft að hann náði ekki jafnvægi.
Það sem verra er að hann datt á brúnina á stofuborðinu og það var ekkert smá högg. Fékk mar undir hökuna,beit í efri vörina og sitthvoru megin í tunguna. En við vorum mjög heppin að ekki fór verr, tungan hefði getað farið í sundur eða komið gat undir hökuna (munaði ekki miklu að það færi í gegn). En allt blessaðist eftir mikinn grátur og kaldan þvottapoka. Það eru myndir af honum í myndaalbúminu.


Lólý og Andri

mánuður... og rúmlega það.

01. september 2008 klukkan 21:13
Jæja... þá er fyrsti mánuðurinn liðinn og hefur bara gengið sgu vel.  ( svo vel allavega að maður er farinn að blóta á dönsku smbr. sgu ( fjandans )).  Maður er aðeins kominn inn í stemmninguna í bekknum eftir þetta "fyllerí" sem konan mín rangnefndi atburðinn í blogginu hér á undan.  Hér heitir þetta neflilega "info fest" og er hávísindaleg athöfn sem byggist aðallega á því að þamba bjór.  Eins og þeir sem þekkja eitthvað til mín vita þá var ég nú ekki lengi að stimpla mig inn sem bekkjar-trúðurinn þegar ég var kominn með bjór í hönd.  Það sem meira er að dönskukunnáttan fór algerlega á flug við 3ja bjór og hefur það greinilega gengið það vel á seinni stigum kvöldsins að nú er ekki talað við mig öðruvísi en á dönsku af bekkjafélögum.  Það gengur reyndar furðu vel, málið er bara að taka pólverjann á þetta.. s.s brosa, kinka kolli og segja "ja" á réttum stöðum þó svo maður skilji lítið.

Á þessum mánuði hef ég nú samt lært alveg fullt af hlutum sem eiga eftir að nýtast mér það sem eftir er ævinnar, t.d að þó svo að drykkurinn heiti eitthvað Cola og er svartur þá er það ekki kók og að bjór og bjór er ekki það sama.  Einnig hef ég lært það að danmörk er ekki flöt og er það mýta sem þarf að útrýma á íslandi.. jú jú það er reyndar enginn punktur hérna sem er hærri en skólavörðuholtið en það er allt í hólum og hæðum og því eru alveg átök að hjóla.  En engar áhyggjur, það sem ég brenni á hjólreiðum bæti ég upp með bjór ( og vel það ).

En að öðru leiti líður okkur vel, bíðum reyndar enn og vonum að Alexander greyið fari að komast inn á leikskóla því að hann á fullt af afgangsorku sem hann þarf að losna við.  Þegar við vorum á íslandi þá fór hann að sofa á milli 19 og 20 á kvöldin, svo þurftum við að vekja hann í leikskólann á morgnanna og ef hann fékk að sofa út þá svaf hann til 10.  Núna fer hann að sofa á milli 20 og 21, vaknar svo á milli 06 og 07 og tilkynnir okkur að það sé kominn dagur... og það er mikil gleði hjá okkur foreldrunum þegar hann gerir það um helgar.  


Kv.
Andri




 

Lólý og Andri

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...