Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

Allt gengur vel bara þrátt fyrir kreppu :)

30. október 2008 klukkan 19:44
ég ætla að byrja á því í dag að biðjast afsökunar á því hvað við erum léleg að blogga núna....... reynum að vera duglegri  :)

Alexander er búin að vera 2 vikur í leikskólanum og er svakalega ánægður, síðustu tvo daga fékk hann að fara í skógargrúppuna og það fannst honum æði. Vera úti í skógi og tína sprek í körfur, skoða köngulær og vera úti ALLAN daginn.En svakalega var hann þreyttur þegar ég sótti hann, vá.  Svo verður Halloween partý hjá þeim á morgun þannig að þau fara ekki í skóginn þá. Næstu 2 vikur verður hann hérna í leikskólanum og svo 2 vikur í skóginum aftur og svoleiðis gengur það koll af kolli. 

Ég byrjaði í dönskuskólanum á mánudaginn var og vá hvað við erum frá mörgum löndum í þessum hóp, við erum t.d. frá Englandi, Rússlandi, Kína, Filipseyjum, Póllandi, Búlgaríu, Frakklandi og fleiri lönd sem ég nenni ekki að telja, en 15 manna hópur.
Svo þegar fyrsta spurningin kom frá kennaranum þá þurfti hún náttúrulega að lenda á mér (tíbískt fyrir mig) og maginn alveg í hnút, en svo spurði hún, Hvad hedder du? og ég bara hjúkk og svaraði náttúrulega bara spurningunni og þá var líka óþarfa hnúturinn farinn. Ótrúlegt hvað maður getur verið stressaður útaf engu. En á tímabili þá spurði ég sjálfa mig hvað ég væri að gera í þessum hóp því að sumir þarna inni skildu ekki eitt einasta orð í dönsku og ipptu bara öxlum ef kennarinn sagði eitthvað vð þau. En ég sé bara til hvernig þetta fer, kannski verður þessi hópur allt í lagi eftir smá tíma.
En ég var nú soldið stolt af því ég nánast skildi allt sem kennarinn sagði, mér hefur nefnilega fundist ég ekki skilja stakkt orð hingað til.

Allt gengur vel með langömmubörnin :),allir lifandi ennþá og í FULLU fjöri. Ég var að lesa einhversstaðar á netinu að ef ég mundi láta búrið afskiptalaust með báðum kynjum í þá gæti ég auðveldlega verið komin með 130 stykki hamstra eftir 19 VIKUR. Þannig að ég var fljót að fá annað búr og skipti þeim niður eftir kynjum. Ekki fleiri takk.

Varðandi vinnu þá kemur eitthvað lítið út úr því  :( , ég er búin að sækja soldið um en fæ annað hvort engin svör eða nei svör, en það hlýtur að fara að koma. Það verður bara að halda áfram og ekki að gefa upp vonina.

Jæja, ég er hætt í bili, reyni að skrifa fljótt aftur.

Kv,
Lólý
 
Lólý og Andri

gengur vel..

21. október 2008 klukkan 13:39
Þá er þriðji dagurinn á leikskólanum hjá Alexander búin. Þetta gengur vonum framar ennþá og hann segir sjálfur að þetta sé skemmtilegur leikskóli. Hann fór fyrst á fimmtudaginn og var með pabba sínum í 3og hálfan tíma, aftur í gær (mánudag) og var með mér í 4 tíma, svo fórum við í morgun og það var búið að ræða við hann að þennan dag mundi hann prófa að vera einn. Eftir 20 mín. í leikskólanum þá spurði ég hvort að ég mætti fara heim og mundi sækja hann þegar hann er úti eftir hádegismatinn.Það hélt hann nú, brosti og sagði bless. Þegar við Andri sóttum hann 3 tímum seinna þá ætlaði hann ekki að vilja koma heim strax. Hann er svo glaður að geta leikið við krakkana, þó hann skilji þau ekki neitt, hann talar bara íslensku á móti :). So þegar hann er búin að aðlagast þá verður hann líka í svona skógargrúppu, þá fara þau á hverjum degi í tvær vikur út í skóg og eru þar allan daginn úti í náttúrunni, svo næstu tvær vikur í leikskólanum og þannig svissast þetta alltaf.

Síðasta laugardag fórum við í Tívolí, það var svaka fjör. Við fórum með Láru, Helga og börnum (mamma og pabbi vinkonu Dagbjartar) og allir fengu hæfilegan skammt af tækjum og skemmtun. Það var halloween þema þessa viku í garðinum og ekkert smá flott að sjá allt sem búið var að gera, FULLT af graskerjum og nornum.

Annars er allt fínt að frétta hjá okkur og okkur líður bara vel í DK.

Bið að heilsa í bili,
Lólý 
Lólý og Andri

Sandkassaleikur

15. október 2008 klukkan 16:37
Þegar kreppa er skollin og ástandið í íslenska bankakerfinu þannig að ekki er hægt að fá krónu frá íslandi og hingað út, er gott að eiga börn sem nenna að fara með "pabba gamla" út að leika svo hann geti gleymt sér í smá stund.



Og þegar horft er yfir afraksturinn þá áttar maður sig á samlíkingunni því að líkt og þessi sandkastali er íslenska bankakerfið byggt á sandi, úr sandi og af strákum og stelpum í sandkassaleik.

En engar áhyggjur, ég á góða vini hérna úti sem hafa hlaupið undir bagga með okkur þannig að við lifum af þar til fjárstreymi frá íslandi til danmerkur kemst í lag..... sannkallaðir haukar í horni þar á ferð

Kv.
Andri
Lólý og Andri

Óvænt fjölgun í fjölskyldunni

11. október 2008 klukkan 10:08
Síðustu helgi fórum við með Dagbjörtu í gæludýraverslun.  Þar fékk hún að velja sér hamstur í afmælisgjöf ( en hún á einmitt afmæli í dag ).  Hamsturinn sem varð fyrir valinu fékk nafnið Rósa.  Okkur hefur fundist frá degi eitt Rósa vera nokkuð skrýtinn hamstur ( allavega miðað við þá sem við höfum átt áður ).  Hún rótaði öllum spæni í búrinu í eitt horn, reyndi oftast að bíta okkur ef við komum nálægt henni og safnaði mat á furðulegustu staði í búrinu ( svona svo að við næðum honum örugglega ekki af henni ).   Skýringin á þessu hegðunarmynstri kom svo i ljós í gær þegar við sáum að í hreiðrinu hennar voru hvorki fleiri né færri en 7 litlir bleikir og blindir hamstra ungar.  Nýbakaðri móður virðist heilsast vel og ver hreiður sitt með kjaft og klóm.  Núna bíðum við fjölskyldan bara spennt eftir að sjá hve margir ungana komast á legg, það kemur í ljós á næstu vikum.  Dagjbört er nátturlega mjög spennt yfir þessari óvæntu fjölgun og tilkynnti okkur það í gær að nú væri hún orðin amma og við Lólý þá langafi og langamma... ekki ónýtt það rétt rúmlega 31 árs.

En Dagbjört mín til hamingju með 8 ára afmælið og barnabörnin


Kv.
Andri

Lólý og Andri

Af Iðnaðarmönnum ...

08. október 2008 klukkan 11:29
Hér í danmörku gildir sama regla og víðast annarsstaðar með iðnaðarmenn, þeir eru misjafnir eins og þeir eru margir.  Ég er samt á því að við hjónin höfum fengið 2 "misjöfnustu" iðnaðarmenn danmerkur í heimsókn.  Þannig er málið að þegar við fluttum inn var okkur gert að fylla út skýrslu um ástand íbúðarinnar og skila til húsvarðar.  Á skýrslu þessari tókum við fram að það væri rakablettur í loftinu í stofunni ( blettur á við 2 tíkalla hlið við hlið ).  Núna 2 mánuðum síðar fáum við svo húsvörðin í heimsókn til að kíkja á þetta.  Eftir smá skoðun segir hann  að hann muni fá iðnaðarmenn til að laga þetta fyrir okkur... þetta var á föstudaginn var.  Á mánudaginn komu svo iðnaðarmennirnir, 2 stykki.  Þeir gengu inn í stofuna, horfðu á blettinn og sögðust svo ætla að koma daginn eftir ( s.s á þriðjudag ).  Á þriðjudaginn kom svo annar þeirra og tilkynnti konu minni það að bíllinn þeirra hefði bilað og þeir væru með allar græjurnar sínar í honum og því gætu þeir ekki gert þetta núna, hann hefði bara fengið annan bíl til þess að geta skutlast og látið hana vita því ekkert hafði hann símanúmer til að hringja í... svona var hann nú snjall ( látum það liggja á milli hluta að allar upplýsingar um Gyngemose parkvej 29 5th er að finna í símaskránni ).  Í dag komu svo þessir tilvonandi Nóbelsverðlaunahafar í faglegri verkfræði til þess að laga blettinn og nota bene á fína iðnaðarmannabílnum sínum.  Eina sem þeir voru nú samt með í höndunum var borvél og eftir að hafa staðið og horft á blettinn í 48 sek komust þessar mannvitslægðir að því að þeir næðu líklegast ekki upp í loftið án þess að standa á einhverju og því benti annar þessara snillinga á leðurklæddu eldhús/borstofustólana okkar og spurði hvort hann mætti fá einn til að standa á.  Við sögðum þeim að við ættum litlar tröppur sem þeir gætu fengið og voru þeir sáttir við það "því það getur jú verið svoldið valt að standa á borðstofustól ".. aha.  Á meðan annar boraði í rakablettinn horfði hinn á.  Þegar gatið hafði verið borað var horft í sotla stund og svo sagði sá sem boraði " hvað.. það er ekkert vatn" og horfði svo á okkur eins og við hefðum verið að plata þá þangað í erindaleysu.  Eftir að hafa báðir horft á hið nýboraða gat í rakablettinum ákváðu þeir að bora annað gat við hliðina á hinu.  Þegar því var lokið sögðu þeir að það væri best að láta þetta bara þorna í viku og svo myndu þeir koma og laga þetta.  Á leiðinni út spurði þögla týpan svo hvort við ættum ekki örugglega ryksugu ( því jú þegar borað er í loft þá vill nú allt verða soldið rykugt ), jú svöruðum við, "flott" sagði hann þá " við sjáumst eftir viku" og þar með fóru þessir gullmolar danskrar iðnaðarmennsku.

Hér fyrir neðan má svo sjá mynd af verkinu sem tók snillingana 3 heimsóknir að framkvæma.






Kv.
Andri
Lólý og Andri

afmæli

07. október 2008 klukkan 18:39
Úff.... þá er maður búin að eiga afmæli einu sinni enn og orðin 31 árs gömul. Ég samviskusamlega bakaði skúffuköku og hafði fleiri kræsingar á boðstólnum og María og strákarnir komu í kaffi til okkar. Andri og krakkarnir gáfu mér rósir,alvöru badmintonspaða (mjög léttur og gott að halda á honum) og 12 flugur með, María og fjölskylda gáfu mér FULLT af snyrtivörum og pottablóm (sem ég vona að ég drepi ekki alveg strax).
Ástæðan fyrir spaðanum frá þeim er sú að ég og María ætlum að fara að æfa badminton í vetur og ég er ekkert smá spennt. Nú er sem sagt engin afsökun á því að byrja ekki að hreyfa sig :)

Nú eru bara tveir dagar í að mamma og Ingi komi og krakkarnir eru orðin ansi spennt. Svo það verður afmæli hjá Dagbjörtu um helgina og það verða fleiri en við fjölskyldan :)

Nú er Alexander komin með hjól sem passar fyrir hann svo það er verið að byrja að þjálfa hann og enn sem komið er er ekkert jafnvægi komið enda engin hjálparadekk og maður er bara 4 ára, svo er nú ekki búið að fara oft. Það er eins gott að byrja strax að þjálfa í þessari hjólamenningu, Dagbjört er nefnilega ekki svo örugg þegar maður er komin í umferðina (eða á hjólastígana).

Jæja bara smá fréttir til að segja eitthvað ;)

Kv,
Lólý
Lólý og Andri

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...