Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

barnabörnin farin :)

19. nóvember 2008 klukkan 21:37
Halló allir,

Þá eru barnabörnin okkar Andra farin, s.s. hamstrarnir. Við leyfðum Dagbjörtu þó að halda einum unga þannig að nú erum við með 2 stykki sem eru Rósa og Gabríella (já, það eru bæði kellingar eins og nöfnin gefa til kynna, ekki fleiri unga takk). Þetta léttir örlítið á vinnunni hjá okkur Andra við að þrífa búrin því það munar að hafa 8 stykki eða 2. En Dagbjört var nú alveg sátt við að skila þeim í búðina, reyndi reyndar aðeins fyrst að fá að hafa 3. Andri hringdi í búðina og sagði að þau hefðu selt okkur óléttan hamstur og hvort þau gætu tekið 6 unga fyrir okkur. Það var ekkert mál, konan sagði að það væri þeim að kenna að hafa selt okkur óléttan hamstur. Og lét okkur svo hafa 2 matarpoka (af hamstramat) í staðinn fyrir hamstrana, það fannst mér góður díll.

Dagbjört er farin að tala alveg helling og gengur hér á eftir manni og segir ekki "mamma" heldur "mor". Það gengur ágætlega hjá henni í skólanum, reyndar einhver smá kítingur en það er víst á milli fleiri stelpna ekki bara henni.
Hún fer alltaf í íslensku kennslu á mánudögum í öðrum skóla og það finnst henni mjög gaman, fyrst þegar hún var að fara þá spurði hún hvort kennarinn væri íslenskur og ég svaraði já, þá sagði hún bara "hjúkk, þá get ég spurt á íslensku", hehehe.En það er nú soldið liðið síðan og hún er farin að spurja dönsku kennarana líka.


Alexander er alsæll í leikskólanum og um helgina taldi hann upp í 5 alveg sjálfur, maður verður SVO stolltur af fyrstu orðunum sem þau segja á öðru tungumáli. Svo segja þær á leikskólanum að hann skilji nokkuð vel hvað þær eru að meina og þær eru líka duglegar að sýna honum hlutina á meðan þær segja orðin. Svo um daginn þegar hann var að ræða við pabba sinn þá spurði hann "pabbi, veistu hvernig maður segir búin á dönsku" ( hann var sko á klósettinu :) ), maður segir færdig. Hann var sko alveg með það á hreinu.

Af okkur Andra er allt gott að frétta, hann er í skólanum og ég heima og í dönskunáminu 2 í viku á kvöldin. 

Svo set ég inn nýjar myndir bráðum og þá er það linkurinn sem er hægramegin á síðuna inn á picasa.

Bið að heilsa í bili,

Kv,
Lólý 
Lólý og Andri

Lítið að segja :)

09. nóvember 2008 klukkan 20:27
Halló...

Síðasta vika hefur verið bara nokkuð róleg, Alexander er reyndar búin að vera með einhverja stæla að fara á leikskólann og fer að væla þegar ég fer en það er búið bara leið og ég fer út af lóðinni eða það segja fóstrurnar allavega. Hann gerði þetta reyndar alltaf reglulega heima á Íslandi líka, tók ca. viku í að láta svona. Hann er bara að testa mig og gá hvort ég tek hann ekki bara með mér heim og sér svo eftir nokkra daga að ég er ekkert að gefa mig og þá gefst hann upp. En hann er alltaf brosandi allan hringinn þegar ég kem að sækja hann svo ég veit alveg að honum líður ekki illa.

Nú er Arnar bróðir komin út og er að leita sér að vinnu og íbúð, vonandi koma svo Benna og Bríet Klara fljótlega líka.

Jæja ég bið að heilsa í bili.

Kv,
Lólý 
Lólý og Andri

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...