... dóttir mín talar Dönsku
Ég á nú ekki til eitt orð, ég vissi það að dóttir mín var farin að segja eitthvað á dönsku en ekki datt mér í hug að það væri svona rosalega mikið. Núna eru 2 danskar vinkonur hennar hjá okkur ( í fyrsta skipti sem danskar stelpur koma hingað ) og Dagbjört talar nánast reiprennandi dönsku. Það eru örfá orð sem hún hikstar á en reddar sér. Við héldum líka að hún væri alltaf svo ýkt í framburðinum þegar hún talar, en við getum ekki heyrt mikin mun á henni og stelpunum. Versta reyndar við þetta er að hún er farin að leiðrétta mig og mömmu sína í framburðinum, sem er nú askoti kjánalegt.. en hún kann þetta víst :).
Annars er Lólý líka orðin kræfari í dönskunni og farin að tala meira, ég er stolltur af henni fyrir það.
Með mig gildir það sama og á íslensku, get sjaldnast þagað... enda var einhverntímann haft á orði við mig í skólanum að ég væri "one man show".
Annars erum við krakkarnir komin í jólafrí og því er ekkert nema leti og át frammundan... sem er reyndar ekkert frábrugðið venjulegum skóladegi hjá mér.. en hvað um það. Prófin hjá mér verða svo í janúar þannig að eitthvað verður lesið í fríinu.
Svo fyrir þá sem hafa ekki frétt þá hef ég fengið vinnu með skóla næsta ár. Fékk að sjálfsögðu vinnu við það að gera við Nokia farsíma ( og hvaða eru mörg við í því ). Þannig að ég er lukkulegur með það.
En annars bið ég bara að heilsa.
Kv.
Andri
ps. stafsétningarvilurnnar eru mínar eigins
