Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Lólý og Andri
  • Netfang: olinahalla77@gmail.com
  • Staður: Søborg
  • Um mig: Erum 4 manna fjölskylda sem erum að flytja búferlum frá Árbæ til Søborg í Danmörku. Við hjónin erum fædd 1977 og eigum við 2 börn þau Dagbjörtu Líf ( 2000 ) og Alexander ( 2004 ).

Leit

allt gott....

23. janúar 2009 klukkan 21:20
halló....

Þá eru nokkrir dagar síðan mamma fór og varð frekar tómlegt þegar hún var farin, var voða gott að hafa hana og krakkarnir ánægðir með að hafa hana, enda fengu þau Cocoa puffs, lifrapylsu og íslenskt nammi.
Andri náði prófunum og er byrjaður á næstu önn og allt gengur vel.  
Alexander er búin að vera eitthvað leiður að fara í leikskólann alla vikuna, var reyndar skástur í morgun. En þau tala um á leikskólanum að hann sé soldið farin að tala dönskuna svo það á vonandi eftir að verða auðveldara fyrir hann. Alltaf erfitt að geta ekki tjáð sig almennilega t.d. ef eitthvað er að.
Dagbjört er bara ánægð í skólanum og er svo spennt núna því hún fer til Íslands í febrúar þegar vetrarfríið er hérna, verður í viku og nú talar hún ekki um annað en þessa ferð og hvað hún vill gera á meðan hún er á Íslandi.
Ég er bara heima og er ennþá að leita að vinnu, var í einu viðtali á mánudaginn og er að bíða eftir svari þar ef það kemur þá svar. Þetta er að verða annsi langur og erfiður tími að vera heima og gera ekkert, ekki alveg fyrir mig. Ég fer svo í próf í dönskuskólanum annan og fjórða febrúar og eftir þau veit ég hvort ég kemst upp á næsta stig. En ég hef sosum litlar áhyggjur af þessum prófum.

En annars biðjum við að heilsa öllum þangað til næst...

Kv,
Lólý 
Lólý og Andri

er að koma gestur :)

08. janúar 2009 klukkan 20:07
Halló...

Já það er sko að koma gestur 16.jan. Það er Guðný amma og allir rosalega spenntir. Það eina sem Dagbjört biður ömmu að koma með er lifrarpylsa með grjónagrautnum :). Alexander biður ekki um neitt nema í dag þá sagði hann að amma mætti alveg koma með Karíus og Baktus sem hægt væri að horfa á, við eigum nefnilega bara geisladiskinn. Það er verið að spila þetta á leikskólanum og hann skildi ekki söguna en þekkti strax öll lögin. Fóstrunum fannst mjög athyglisvert þegar ég kom að sækja hann einn daginn og þá kom hann hlaupandi til mín og sagði að þau væru að hlusta á söguna, vissu ekki að hann þekkti þetta.

Annars er allt gott að frétta, krakkarnir mjög ánægðir að fá rútínuna sína aftur og komast í skólana sína. Andri er í prófunum núna, er búin með eitt sem honum gekk rosa vel í og fer svo í annað á morgun og ég efast ekki um að hann standist það með glæsibrag. Ég er ENN heima og er að leita að vinnu.

Já og ég var að setja inn eitthvað að myndum á picasa síðuna okkar. Linkurinn á hana er efst til hægri.

Kv,
Lólý 
Lólý og Andri

Jól og áramót búin...

01. janúar 2009 klukkan 16:09
Sæl öll sömul og gleðilegt nýtt ár. 

Við erum búin að hafa það svakalega fínt hér um hátíðarnar. Á aðfangadag vorum við 4 heima og það var svaka kósí hjá okkur, samt skrítið að hafa engan Magga afa og svo kíkti enginn í kaffi eftir pakkaupptöku eins og Guðný amma og Ingi afi hafa gert ef við erum heima á aðfangadag. Á jóladag og annan í jólum vorum við sko bara heima á náttfötunum og lágum í LETI. Eftir jól skelltum við okkur í jólatívolí og það var frábært, fórum í fullt af tækjum og þá sérstaklega Dagbjört sem var bara gjörsamlega óð í öllu og sló okkur þremur alveg út. Svo er alltaf svona jólaland sem var gaman að skoða og fullt af ljósum út um allt.
Ég og Dagbjört fórum í bíó að sjá High school musical 3 (auðvitað) og það var voða gaman að fara svona bara tvær og njóta þess að vera saman.
Um áramótin fórum við með Maríu systir til vinkonu hennar og þar vorum við alveg 10 fullorðin og 8 börn svo það var fjör á bæ. Þetta voru fín áramót og var skálað bæði fyrir dönskum og íslenskum áramótum. Alexander sofanði 5 mínútur fyrir miðnætti og var alveg búin á því en Dagbjört vakti til hálf þrjú. Þetta voru fyrstu áramótin hennar Dagbjartar sem hún fór út um miðnætti því hún hefur alltaf verið svo svakalega hrædd við þessar sprengjur og lætin í kringum þetta. Ég held það hafi verið vegna þess að það var ekki mikið sem var sprengt nálægt okkur.

Krakkarnir voru ánægðir með allar jólagjafirnar, já og við auðvitað líka. Það eina sem Dagbjört vonaðist til að fá og fékk ekki frá okkur var Nintendo DS. En hún er ákveðin í því núna að safna sér pening til að fá tölvuna. Þannig að nú er hún svo dugleg með heimilisverkin og svo hjálpsöm af því hún veit hún fær smá pening fyrir að hjálpa okkur. 

Við þökkum kærlega fyrir okkur og öll jólakortin.

Kv,
Lólý
Lólý og Andri

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...