halló....
28. febrúar 2009 klukkan 19:46
longtæmnosí...
Hér er allt sæmilegt að frétta. Ég að vinna, Andri í skólanum svona þegar ekki eru veikindi og Alexander og Dagbjört í sínum skólum. Vinnan hjá mér byrjaði nú ekki vel, ég var búin að vera veik 4 daga fyrir fyrsta vinnudaginn, mætti svo hálf veik í vinnuna og var í þrjá daga (mán, þri,mið,), á fimmtudeginum var ég orðin svo slöpp að Andri eiginlega bannaði mér að fara í vinnuna. Þá ákvað ég að fara til læknis þar sem þetta var búin að vera vika og ég nýbyrjuð í vinnunni. Útúr læknisheimsókninni kom að ég var komin með lungnabólgu (enda að hósta úr mér veit ekki hverju), á að vera heima í einhvern tíma meðan ég er að jafna mig og það tók frá fimmtudegi fram á mánudag. Loksins gat ég farið að mæta í vinnuna þó máttlaus væri ennþá en maður lét sig hafa það. En nú er ég sko komin með fullan kraft aftur (fyrir utan letina:) hehe ). Alexander var veikur með mér fyrstu dagana en hann var ekki lengi að ná sér uppúr þessu. Og hefur nota bene ekkert notað púst í vetur 7 9 13.
Dagbjört fór í heimsókn til Íslands í vetrarfríinu og skemmti sér konunglega og var svakalega ánægð að hitta alla. Var voða spennandi að fara ein með vinkonu sinni og bróður hennar sem er 12 ára í flugvélina, já þetta var sko ekki mikið mál hjá henni. Henni fannst hún alveg orðin 13 ára að fara svona án okkar :) .
Nú er Dagbjört komin með hlaupabóluna og er með soldið mikið að bólum (7 bara á enninu) að mér finnst en hún er rosa dugleg að klóra sér ekki í bólunum, en þeir eru aðalega á bakinu, maganum og höfðinu. En hún er að sleppa við hita og svoleiðis, borðar bara lítið.
Svo er gaman að segja frá því að við erum að fá tengdó í heimsókn um páskana, það verður rosa gaman að fá þau þar sem það er langt síðan við hittumst síðast.
Annars er bara allt að ganga sinn vanagang hérna, alt i orden bara.
Þangað til næst,
Kveðja, Lólý

Lólý og Andri